Kiran Pacific á síðasta séns 28. júní 2004 00:01 "
Þetta gat ekki farið betur miðað við aðstæður," sagði Helgi Jensson, hjá Umhverfisstofnun, skömmu eftir að tyrkneska súrálsflutningaskipið Kiran Pacific losnaði af strandstað á þriðja tímanum í gær. Eftir að skipið losnaði hafði ekki orðið vart við olíuleka eða mengun frá skipinu. Skipið strandaði á skeri 3,3 sjómílum norðvestur af Straumsvíkurhöfn á laugardagskvöld. Að sögn Halldórs Nellett, skipherra á varðskipinu Ægi, var háflóð og aðstæður góðar þegar skipið losnaði af skerinu. Lofti hafði verið dælt í tanka skipsins og dró dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði skipið af skerinu. "Það eru göt á skipinu og það þarf að mynda þau og athuga hvort ekki sé hægt að sjóða utan á þau. Við höfum ekki aðstöðu til að taka svona stórt skip upp þannig að því verður að sigla til annars lands þegar það er tómt," segir Þór Kristjánsson, deildarstjóri hjá Siglingastofnun. Aðspurður sagði Þór skipið ekki vera á válista. Það hafi hins vegar verið stöðvað tvisvar á tveimur síðustu árum í höfnum þar sem Parísarsamkomulagið nær yfir og ef það verður stöðvað einu sinni enn fer það á bannlista. Ekki fengust upplýsingar um af hverju skipið hefði tvívegis verið stöðvað. Til að skip sé stöðvað þurfa að vera gerðar alvarlegar athugasemdir, til að mynda ef pappírar eða öryggisbúnaður eru ekki í lagi. 21 land í Evrópu er í Parísarsamkomulaginu sem vinnur eftir ákveðnum reglum og gefur upplýsingar um skip sín á milli. Siglingastofnun skoðar 25 prósent allra erlenda skipa sem hingað koma og þurfa lausafarmsskip sem eru tólf ára eða eldri eins og Kiran Pacific að fara í víðtæka skoðun einu sinni á ári. Tími var fyrir Kiran Pacific að fara í víðtæka skoðun og hafði skipstjóri skipsins pantað slíka skoðun hér áður en skipið strandaði og verður byrjað á skoðuninni í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira