Innlent

Kæru vísað frá

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands vísaði frá Kæru vegna ummæla Ingva Hrafns Jónssonar í þættinum Hrafnaþingi á Útvarpi Sögu um forseta Íslands. Halldór Bjarnason kærði ummæli Ingva Hrafns Jónssonar í þættinum Hrafnaþingi á Útvarpi Sögu þann 17. maí síðastliðinn um forseta Íslands. Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur aðild Halldórs samkvæmt kærunni ekki uppfylla skilyrði sjöttu greinar siðareglna félagsins um eðlileg hagsmunatengsl milli Halldórs og kæruefnisins. Málið verður því ekki tekið til efnislegrar umfjöllunar og hefur verið vísað frá af siðanefnd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×