Hægt að fækka um 100 rúm á LSH 25. júní 2004 00:01 "
Við höfum sagt það, að ef við losnum við allar þessar stíflur sem hindra að við getum látið starfsemina á spítalanum fljóta eðlilega á milli þjónustustiga, þá væri hægt að fækka plássum spítalans um 12 - 13%, eða allt að hundrað," sagði Jóhannes M. Gunnarsson framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala háskólasjúkarhúsi. Nú eru rúmlega 900 rúm á spítalanum. Jóhannes er formaður forstjóranefndar sem nýverið skilaði skýrslu um breyttar áherslur að hluta til á starfi spítalans. Nefndin segir nauðsynlegt að efla ferliverkastarfsemi á LSH. Fjölbreytt göngu- og dagdeildastarfsemi sé nú þegar til staðar á spítalanum. Er það niðurstaða nefndarinnar að hana þurfi enn að efla verulega, einkum til að stuðla að frekari hagræðingu í rekstri spítalans með því að fækka innlögnum og stytta legutíma, en jafnframt vegna háskólahlutverks spítalans. Ferliverk á LSH eru unnin á göngudeildum og dagdeildum. Á göngudeildir koma þeir sem ekki þurfa að leggjast inn til meðferðar. Á dagdeildir koma sjúklingar sem þurfa að leggjast inn til meðferðar og eftirlits, en dveljast ekki yfir nótt. Nefndin hefur lagt fram margar og ítarlegar tillögur. Meðal annarra, að leitað verði eftir því við heilbrigðisyfirvöld að fjármögnun vegna göngudeildarþjónustu spítalans verði breytt og upp verði teknar verktengdar greiðslur til spítalans vegna göngudeildarverkefna í stað árlegra heildargreiðslna. Uppbygging sérhannaðs húsnæðis fyrir ferliverkastarfsemi verði eitt af forgangsverkefnum við hönnun og byggingu nýs húsnæðis spítalans. Jóhannes sagði ákveðnar forsendur, til viðbótar þeim, er að ofan greindi, þurfa að vera fyrir hendi til að hægt væri að fækka plássum á spítalanum. Meðal annars þyrfti að leysa þann vistunarvanda, sem fyrir hendi væri. Þá þyrfti að koma upp sjúkrahóteli sem væri í beinum tengslum við sjúkrahúsið.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira