Gunnar Örn ákærður 25. júní 2004 00:01
Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna, hefur verið ákærður fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ársreikninga og skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum um endurskoðendur, með því að hafa á árunum 1993-2001 vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingarsjóðsins. Skilanefnd Tryggingarsjóðsins krefst þess að hann verði dæmdur til þess að greiða sjóðnum rúmlega 47 og hálfa milljón króna, og til vara tæplega 23 milljónir. Gunnar Örn er sakaður um að hafa eftir endurskoðun á ársreikningum sjóðsins fyrir árin 1992-2000, áritað ársreikningana án fyrirvara, með yfirlýsingu um að þeir gæfu glögga mynd af efnahags og breytingu á eign, en án þess að hafa við endurskoðunarvinnuna aflað fullnægjandi gagna til að byggja slíkt álit á, og ekki kannað á fullnægjandi hátt þau gögn sem fyrir lágu. Í ákærunni segir að hann hafi þannig ekki hagað endurskoðunarvinnu sinni í samræmi við góða endurskoðunarvenju, meðal annars með því að hafa ekki kannað á fullnægjandi hátt gögn sem lágu að baki skuldabréfalistum, sem fyrir hann voru lagðir á umræddu tímabili. Einnig með því að hafa ekki aflað gagna varðandi lífeyrisgreiðslur, endurgreiðslur, réttindaflutning og útborganir úr sjóðnum. Þá segir í ákærunni á hendur Gunnari Erni að hann hafi ekki aflað nægilegra gagna um eignastöðu og skuldbindingar sjóðsins til að geta endurskoðað ársreikningana í samræmi við reglur bankaeftirlitsins og síðar Fjármálaeftirlitsins um endurskoðun lífeyrissjóða. Við rannsókn á stöðu Tryggingarsjóðs lækna hafi komið í ljós að raunvirði eigna sjóðsins í árslok 2000 hafi verið innan við 35% af metnu verðmæti eignanna, samkvæmt ársreikningi fyrir það ár. Brotin teljast meðal annars varða við almenn hegingarlög, lög um ársreikninga og reglur Fjármálaeftirlitsins um endurskoðun lífeyrissjóða. Ríkislögreglustjóri krefst þess að Gunnar Örn verði dæmdur til refsingar og verði ennfremur sviptur réttindum til starfa sem löggiltur endurskoðandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira