Þyngsti dómur í fjársvikamáli 23. júní 2004 00:01 "
Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir hylmingu með því að veita um 138 milljónum króna viðtöku og halda fénu ólöglega fyrir Sveinbjörn. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir hylmingu. Auður Harpa Andrésdóttir, fimmti sakborningurinn í málinu, var sýknuð. Jón H. segir dóminn vera í samræmi við það sem búast mátti við. Hvort málinu verði áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins sé í höndum ríkissaksóknara. Hann muni una dóminum þar til annað komi í ljós. Árni Þór og Kristján Ragnar, sem mættu hvorugur í héraðsdóm í gær, ætla ekki að una dóminum og hafa tekið ákvörðun um að áfrýja honum til Hæstaréttar. Óvíst er að svo stöddu hvort Sveinbjörn muni áfrýja dómnum en verjandi hans er staddur erlendis. Verjandi Ragnars Orra segir dóminn hafa komið sér í opna skjöldu. Ragnar hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni áfrýja dómnum. Bótakröfu Landssímans var vísað frá dómi en í tilkynningu frá Landssímanum segir að með sakfellingu mannanna fjögurra hafi verið lagður grundvöllur að bótakröfu og þeir muni eftir atvikum höfða einkamál. "Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka," segir Auður Harpa ,sem var sýknuð í héraðsdómi í gær en hún var ákærð fyrir minnstu sakirnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira