Innlent

Þyngsti dómur í fjársvikamáli

"Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir hylmingu með því að veita um 138 milljónum króna viðtöku og halda fénu ólöglega fyrir Sveinbjörn. Ragnar Orri Benediktsson var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir hylmingu. Auður Harpa Andrésdóttir, fimmti sakborningurinn í málinu, var sýknuð. Jón H. segir dóminn vera í samræmi við það sem búast mátti við. Hvort málinu verði áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins sé í höndum ríkissaksóknara. Hann muni una dóminum þar til annað komi í ljós. Árni Þór og Kristján Ragnar, sem mættu hvorugur í héraðsdóm í gær, ætla ekki að una dóminum og hafa tekið ákvörðun um að áfrýja honum til Hæstaréttar. Óvíst er að svo stöddu hvort Sveinbjörn muni áfrýja dómnum en verjandi hans er staddur erlendis. Verjandi Ragnars Orra segir dóminn hafa komið sér í opna skjöldu. Ragnar hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni áfrýja dómnum. Bótakröfu Landssímans var vísað frá dómi en í tilkynningu frá Landssímanum segir að með sakfellingu mannanna fjögurra hafi verið lagður grundvöllur að bótakröfu og þeir muni eftir atvikum höfða einkamál. "Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka," segir Auður Harpa ,sem var sýknuð í héraðsdómi í gær en hún var ákærð fyrir minnstu sakirnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×