Blessun yfir samruna 23. júní 2004 00:01 "
Þetta kemur okkur ekki á óvart í sjálfu sér, en við erum þó mjög ánægðir með þessa niðurstöðu," sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, um þá niðurstöðu samkeppnisráðs, að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa af samruna Fréttar við Norðurljós. Í niðurstöðu sinni segir samkeppnisráð:" Hvað varðar samruna Fréttar við Norðurljós bendir samkeppnisráð á að Íslenska útvarpsfélagið og Frétt starfa á ólíkum samkeppnismörkuðum fjölmiðlunar, það er annars vegar útvarps- og sjónvarpsrekstur og hins vegar útgáfu dagblaða. Er afleiðing samrunans að þessu leyti því hvorki sú að saman renni raunverulegir eða hugsanlegir keppinautar (láréttur samruni) né tengsl í þeim skilningi að annar þessara aðila framleiði vörur eða þjónustu sem hinn notar í starfsemi sinni (lóðréttur samruni). Þótt slíkur samruni sé alla jafna ekki talinn hafa skaðleg áhrif á samkeppni, bendir samkeppnisráð þó á að í undantekningartilvikum hafi verið talið að um neikvæð samkeppnisáhrif gæti verið að ræða, svonefnd samsteypuáhrif, þar sem öflugt fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu á einhverjum markaði (mörkuðum) nýtir sér stöðu sína til þess að ná sterkri stöðu á öðrum markaði. Eins og nánar er útskýrt í ákvörðuninni telur samkeppnisráð hins vegar að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa í þessu máli." Skarphéðinn sagði, þetta sýndi, og raunar benti Samkeppnisstofnun á það í ofangreindri tilkynningu, að samkeppnislög ættu við um fjölmiðla eins og önnur fyrirtæki og ákvæði þeirra laga mætti nota ef fjölmiðlar með einhverjum hætti misnotuðu aðstöðu sína á markaði. "Það var það sem þessum svokölluðu fjölmiðlalögum var ætlað að gera, að bregðast við því ef fjölmiðlar væru í þeirri stöðu að geta misnotað aðstöðu sína," sagði hann. Spurður hvað þetta segði um nýsett fjölmiðlalög, sagði Skarphéðinn að þau væru óþörf, að minnsta kosti að hluta til.
Fréttir Innlent Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira