Innlent

Blessun yfir samruna

"Þetta kemur okkur ekki á óvart í sjálfu sér, en við erum þó mjög ánægðir með þessa niðurstöðu," sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, um þá niðurstöðu samkeppnisráðs, að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa af samruna Fréttar við Norðurljós. Í niðurstöðu sinni segir samkeppnisráð:" Hvað varðar samruna Fréttar við Norðurljós bendir samkeppnisráð á að Íslenska útvarpsfélagið og Frétt starfa á ólíkum samkeppnismörkuðum fjölmiðlunar, það er annars vegar útvarps- og sjónvarpsrekstur og hins vegar útgáfu dagblaða. Er afleiðing samrunans að þessu leyti því hvorki sú að saman renni raunverulegir eða hugsanlegir keppinautar (láréttur samruni) né tengsl í þeim skilningi að annar þessara aðila framleiði vörur eða þjónustu sem hinn notar í starfsemi sinni (lóðréttur samruni). Þótt slíkur samruni sé alla jafna ekki talinn hafa skaðleg áhrif á samkeppni, bendir samkeppnisráð þó á að í undantekningartilvikum hafi verið talið að um neikvæð samkeppnisáhrif gæti verið að ræða, svonefnd samsteypuáhrif, þar sem öflugt fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu á einhverjum markaði (mörkuðum) nýtir sér stöðu sína til þess að ná sterkri stöðu á öðrum markaði. Eins og nánar er útskýrt í ákvörðuninni telur samkeppnisráð hins vegar að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa í þessu máli." Skarphéðinn sagði, þetta sýndi, og raunar benti Samkeppnisstofnun á það í ofangreindri tilkynningu, að samkeppnislög ættu við um fjölmiðla eins og önnur fyrirtæki og ákvæði þeirra laga mætti nota ef fjölmiðlar með einhverjum hætti misnotuðu aðstöðu sína á markaði. "Það var það sem þessum svokölluðu fjölmiðlalögum var ætlað að gera, að bregðast við því ef fjölmiðlar væru í þeirri stöðu að geta misnotað aðstöðu sína," sagði hann. Spurður hvað þetta segði um nýsett fjölmiðlalög, sagði Skarphéðinn að þau væru óþörf, að minnsta kosti að hluta til.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×