Sport

Fín staða Fylkis

Fylkismenn voru óheppnir að tapa fyrir belgíska liðinu Gent í fyrstu umferð Intertoto-keppninnar í gær. Fylkir var sterkari aðilinn allan leikinn en Gent skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á síðustu mínútu. Fylkir stendur ágætlega að vígi eftir fyrri leikinn gegn belgíska úrvalsdeildarliðinu Gent í fyrstu umferð Intertoto-keppninnar í knattspyrnu. Finnur Kolbeinsson skoraði úr vítaspyrnu fyrir Fylki í síðari hálfleik og gæti það útimark reynst dýrmætt þegar upp er staðið. Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis, var hæstánægður með leik sinna manna og kenndi klaufaskap um tapið. „Þetta var okkar besti leikur á tímabilinu og við vorum mun betri aðilinn í leiknum, sérstaklega í síðari hálfleik. Við vorum einfaldlega klaufar að nýta ekki færin,“ sagði Þorlákur. Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik en í þeim síðari komu þrjú mörk, öll úr vítaspyrnum. Gent komst yfir snemma í hálfleiknum, en Finnur jafnaði eftir að brotið hafði verið á Björgólfi Takefusa, sem skömmu áður hafði komið inn á sem varamaður. Valur Fannar Gíslason varð síðan fyrir því óláni að fá boltann í höndina innan teigs á lokamínútu leiksins, og skoraði Gent úr vítinu sem dæmt var í kjölfarið. „Það var ekkert við þessu seinna víti að gera en það fyrra var algjör gjöf, og má segja að dómarinn hafi nú verið Belgunum afskaplega þægilegur allan leikinn. En við náðum að halda boltanum mjög vel innan leiksins og pressuðum á þá allan leikinn,“ segir Þorlákur en hann gerði nokkrar breytingar á sínu liði, setti meðal annars Guðna Rúnar Helgason á miðjuna við hlið Ólafs Stígssonar. Þorlákur telur lið sitt eiga fína möguleika á að komast áfram. „Þetta er alveg 50/50 held ég. Ég hélt að þeir væru sterkari og mér fannst þeir klárlega vanmeta okkur. En þeir eru nýbyrjaðir að æfa og verða án efa sterkari í seinni leiknum. En okkur nægir 1–0 sigur og við höfum skorað í öllum leikjum okkar í ár svo að þetta lítur alveg ágætlega út,“ segir Þorlákur. Leikurinn fór fram við bestu mögulegu aðstæður og mættu tæplega 5.000 manns á völlinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×