Hnífjafnt hjá Englandi og Króatíu 18. júní 2004 00:01
Franski miðvallarleikmaðurinn hjá Arsenal, Patrick Vieira, telur að leikur Englendinga og Króata á mánudaginn í B-riðli verði hnífjafn. Vieira hefur spilað gegn báðum þjóðunum á EM og sagði: "Þetta verður mjög erfiður leikur fyrir bæði lið en þau hafa heillað mig í þessari keppni. Englendingar hafa verið að spila mjög góðan varnarleik á meðan Króatarnir hafa spilað góðan sóknarleik. Króatar eru með ansi sterkt lið og tæknilega eru þeir mjög góðir. Þetta verður stór leikur því Englendingar eru líka mjög sterkir og bæði lið eru orðin örvæntingarfull og gera hvað sem er til að komast áfram - þetta verður því mjög athyglisverður leikur," sagði Vieira. Englendingar vita að jafntefli dugir til að fleyta þeim áfram í átta liða úrslitin þar sem þeir gætu mætt Portúgölum, Spánverjum eða Grikkjum. Vieira og Frakkarnir hans eru í sömu stöðu því þeir þurfa stig gegn Svisslendingum til að gulltryggja sig áfram og Vieira er vel meðvitaður um það: "Í sannleika sagt er mér nokk sama um leik Englendinga og Króata því sjálfir erum við ekki öruggir áfram og það er það sem ég er fyrst og fremst að hugsa um," sagði Patrick Vieira.
Íslenski boltinn Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Íslenski boltinn Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Sport Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Fleiri fréttir Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Uppgjörið: Valur - Tindastóll 6-2 | Fanndís fór hamförum Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Sjá meira