Misskilningi um hryðjuverk eytt 17. júní 2004 00:01
Yfirheyrslum nefndar um hryðjuverkin í New York ellefta september árið 2001 lýkur í dag. Nefndarmenn segja líklegt að niðurstöður nefndarinnar muni eyða útbreiddum misskilningi um hryðjuverkin. Meðal þess sem nefndarmenn segja að koma muni í ljós er að ekki hafi staðið til að bandarískar herflugvélar myndu skjóta niður farþegaflugvél ef með þyrfti. Einn nefndarmanna segir engar flugvélar hafa verið tilbúnar til slíks verks og fyrir því hafi verið margar ástæður, meðal annars lagalegar. Hann segir ýmsum goðsögnum um hryðjuverkin verða eytt þegar nefndin hafi lokið störfum sínum. Eitt af því sem fram hefur komið í rannsókn nefndarinnar er að engin tengsl séu eða hafi verið á milli Al-Qaeda og Íraka. Auk meintra gereyðingarvopna voru þessi tengsl einmitt ein af grundvallarforsendum innrásarinnar í Írak og því er talið að niðurstöður nefndarinnar séu að vissu leyti áfellisdómur yfir George Bush forseta Bandaríkjanna. John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata segir niðurstöður nefndarinnar sýna að bandaríkjastjórn hafi afvegaleitt þjóð sína og sagt henni ósatt um atburði og eigin fyrirætlanir. Í yfirlýsingum frá Hvíta húsinu segir hins vegar að niðurstöðurnar gangi ekki þvert á það sem Bandaríkjastjórn hafi sagt og í þeim felist alls enginn áfellisdómur yfir núverandi forseta. Hvað sem því líður hefur hópur fyrrverandi ríkiserindreka og herstjórnenda gefið frá sér yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að utanríkisstjórn Bandaríkjanna hafi verið hroðaleg í tíð núverandi forseta og nauðsynlegt sé að nýr forseti taki við völdum í haust.
Erlent Fréttir Mest lesið „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Innlent Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent