Detroit Pistons meistarar 16. júní 2004 00:01
Detroit Pistons tryggði sér í nótt sigurinn í NBA-deildinni í körfuknattleik með því að leggja LA Lakers að velli, 100-87, í fimmta leik liðanna í Detroit. Loksins tókst liði úr Austurdeildinni að vinna titilinn í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum. Lið Detroit Pistons, sem að fáir áttu von á að myndi eiga séns í hið geysisterka lið Los Angeles Lakers, gerði sér lítið fyrir og vann úrslitaseríuna í fimm leikjum. Pistons var með sigurinn í hendi sér alla rimmuna og sáu leikmenn Lakers aldrei til sólar í einvíginu. Detroit er fyrsta liðið á Austurströndinni til að vinna titilinn síðan 1998 þegar hið víðfræga Chicago Bulls vann dolluna. Allar götur síðan hafa lið Vesturdeildarinnar einokað titilinn. Með bakið upp við vegg mætti Lakers til leiks í fimmta leik liðanna í fyrrinótt. Plan kvöldsins var mjög einfalt – ná fram sigri til að komast aftur í Staples Center í Los Angeles. Leikmenn Lakers náðu að bíta frá sér í byrjun leiks og náðu mest sjö stiga forskoti. Pistons lét það þó ekki slá sig út af laginu og náði yfirhöndinni fyrir lok fyrsta fjórðungs. Kobe Bryant og félagar áttu ekki erindi sem erfiði það sem eftir lifði leiks og voru hreinlega yfirspilaðir af vel stemmdu liði Pistons. Rip Hamilton fór á kostum, skoraði 21 stig og var dyggilega studdur af Chauncey Billups, sem valinn var besti leikmaður úrslitakeppninnar. Fyrir seríuna sagði Billups að þeir ætluðu að hrista upp í heimsbyggðinni. "Við vissum sem lið að við værum betri" sagði Billups eftir leikinn. Pistons náði mest 29 stiga forskoti í fjórða leikhluta og Phil Jackson, þjálfari Lakers, varð í fyrsta sinn á ferlinum að játa sig sigraðan í úrslitaviðureign. "Þeir spiluðu mjög vel og skotnýtingin þeirra var frábær" sagði Jackson, sem gaf í skyn að þetta væri hans síðasta tímabil. "Ég vil ekki fullyrða neitt en það eru góðar líkur á því". Vonbrigðin fyrir Lakers voru gríðarleg og þá sérstaklega fyrir Karl Malone og Gary Payton sem báðir gerðu sér góða von um að ná sér í sinn fyrsta meistarahring. Óvíst er hvort þeir fái annað tækifæri til þess enda framtíð liðsins í mikilli óvissu. Kobe Bryant og Shaquille O’Neal eru báðir með lausa samninga og er ekki vitað hvernig þau mál fara. Andleysi liðsins gegn Detroit var mjög áberandi og sorglegt fyrir Lakers-aðdáendur að sjá liðið falla um sjálft sig. Lið Detroit Pistons vann síðast titil árið 1990 en þá lék Joe Dumars með liðinu sem er núna framkvæmdastjóri Pistons. Dumars var að vonum sáttur við úrslitin. "Mér fannst frá upphafi að við værum með betra lið" sagði Dumars. "Þeir eru með tvo bestu leikmenn heims. En þetta er ekki tennis! Það er liðsheildin sem ræður úrslitum". Orð að sönnu hjá Joe Dumars. Fróðlegt verður að fylgjast með Detroit Pistons á komandi tímabili og hvort það nái að fylgja þessum frábæra árangri eftir. Það hefur allar burði til þess enda með firnasterka leikmenn í hverri stöðu og vel að titlinum komið.
Íþróttir Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Sjá meira