Williams og Toyota dæmd úr leik 15. júní 2004 00:01
Keppnisbílar BMW Williams og Toyota, sem luku keppni í stigasætum í kanadíska kappakstrinum um síðustu helgi, voru dæmdir úr leik fimm tímum eftir að keppninni lauk. Liðin nýttu sér ekki áfrýjunarrétt sinn og því var niðurstaða dómnefndar staðfest. Í tilkynningu sem Alþjóðaaksturssambandið, FIA, sendi frá segir meðal annars: "Skoðunarmenn hafa fengið þær upplýsingar frá tæknistjóra mótsins að loftinntök til kælingar bremsukerfa á bílum Juan Pablo Montoya og Ralf Schumacher hafi ekki verið af leyfilegri stærð. Þá hafa skoðunarmenn fengið skýringar á málinu frá Sam Michael, tæknistjóra BMW Williams, og hann meðtekur álit skoðunarmanna. Ákvörðun þeirra er að dæma stigin af ökumönnum liðsins." Ralf Schumacher var afar ósáttur við BMW Williams-liðið eftir dóm skoðunarmanna í Montreal og svo fór að sjálfur Frank Williams hringdi persónulega í hann og baðst afsökunar á atvikinu en Ralf segir það litlu breyta: "Frank hringdi í mig og baðst afsökunar en það er lítil huggun í því. Brot á reglum er brot á reglum og mér er refsað fyrir það. Við verðum að sætta okkur við þetta en það er langt í frá auðvelt. Þetta eru mikil vonbrigði því það var mikil jákvæðni innan liðsins sem skilaði sér í góðum árangri," sagði Ralf Schumacher hundfúll og bætti við: "Það þýðir þó lítið að kvarta og ég stefni ótrauður á toppinn. Það er vika í næsta mót og vonandi tekst mér vel upp." Juan Pablo Montoya tók dóminum ekki eins illa og Ralf: "Því miður gerðu tæknimenn okkar mistök og slíkt getur alltaf gerst." Eftir keppnina er Michael Schumacher efstur með 70 sig og 16 stiga forskot á félaga sinn hjá Ferrari, Rubens Barichello, sem kemur næstur. Jenson Button hjá BAR-Honda er í þriðja sæti með 44 stig og Jarno Trulli, Renault, í því fjórða með 36. Í keppni bílasmiða er Ferrari langefst með 124 stig, Renault er með 61 og BAR-Honda 52.
Íþróttir Mest lesið Leik lokið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Íslenski boltinn Leik lokið: Breiðablik - ÍBV 1-1 | Eyjamenn náðu ekki upp í efri hlutann Íslenski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Beit andstæðing á HM Sport City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Fleiri fréttir Sparkað í klof liðsfélaga Kolbeins en sigurinn sóttur Leik lokið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Meiðslahrjáði miðvörðurinn lætur gott heita Leik lokið: Breiðablik - ÍBV 1-1 | Eyjamenn náðu ekki upp í efri hlutann Hundfúll út í Refina Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Sjá meira