Lakers jafnaði metin 14. júní 2004 00:01
Los Angeles Lakers mörðu sigur, 99-91, á Detroit Pistons í öðrum leik lokaúrslita NBA-deildarinnar í körfubolta. Þar með er staðan jöfn, 1-1, en það verður að segjast eins og er að leikmenn Detroit voru klaufar og hentu frá sér unnum leik. Þeir voru sex stigum yfir, 83-89, þegar aðeins 47 sekúndur voru eftir. Í framhaldinu náði Shaquille O’Neal frákastinu eftir misheppnað skot Kobes Bryant og skoraði tveggja stiga körfu og fékk vítaskot að auki, semmerkilegt nokk, hann nýtti. Þá voru 35 sekúndur eftir. Detroit náði ekki að skora og Lakers fékk boltann og um leið síðustu sókn venjulegs leiktíma. Segja má að Detroit hafi gert nokkuð stór mistök í þessari lokasókn Lakers því liðið ákvað að brjóta ekki á öðrum af tveimur skelfilegum vítaskyttum, Shaquille O’Neal og nýliðanum Luke Walton, undir lokin en treystu þess í stað að Lakers næði ekki að setja niður þrist. Það er varasamt að taka slíka áhættu gegn liði sem er með leikmann að nafni Kobe Bryant innanborðs. Hann nærist á aðstæðum sem þessum og þegar aðeins 2,1 sekúnda var eftir af venjulegum leiktíma setti hann niður þristinn sem þurfti og tryggði þannig Lakers framlengingu. Í framlengingunni tók Lakers síðan völdin og skoraði 10 stig gegn aðeins 2 komu frá Pistons. Ekki er ólíklegt að þessi þriggja stiga karfa Bryants hafi verið snúningspunktur þessa einvígis því þau lið sem hafa tapað tveimur fyrstu heimaleikjunum í lokaúrslitum hafa aldrei náð að snúa dæminu sér í vil og verða meistarar. „Við höfum alltaf trú á því að Kobe geti gert kraftaverk þegar við þurfum á einu að halda, jafnvel þegar hlutirnir eru ekki að ganga alveg upp hjá honum,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers eftir leik. Atkvæðamestir hjá Lakers voru þeir mátar, Kobe Bryant, með 33 stig og sjö stoðsendingar, og Shaquille O’Neal, með 29 stig og sjö fráköst. Hjá Detroit var Chauncey Billups með 27 stig og níu stoðsendingar. Richard Hamilton kom næstur með 26 stig og átta fráköst.
Íþróttir Mest lesið Fagnaði heimsmetinu í karíókí herbergi Sport Bitvargurinn fékk tólf leikja bann Sport Mikil ánægja með Mikael: „Hann hefur gjörbreytt liðinu“ Fótbolti Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Handbolti Ítalskur skíðakappi lést eftir árekstur á æfingu Sport Líktu varnarleik KR við varnarleik fimmtugs old boys liðs Íslenski boltinn „Sérfræðingarnir sem hafa spáð okkur tólfta sætinu“ Íslenski boltinn Þjálfari Sverris rekinn eftir tvo leiki Sport Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst, Lokasóknin og VARsjáin Sport Lárus Orri: Fórum í „Fuck you mode“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Líktu varnarleik KR við varnarleik fimmtugs old boys liðs Sjáðu hvernig ÍA lyfti sér af botninum og mörkin í Smáranum Ítalskur skíðakappi lést eftir árekstur á æfingu Bitvargurinn fékk tólf leikja bann Fagnaði heimsmetinu í karíókí herbergi Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst, Lokasóknin og VARsjáin Mikil ánægja með Mikael: „Hann hefur gjörbreytt liðinu“ Burrow leggst undir hnífinn og verður lengi frá Þjálfari Sverris rekinn eftir tvo leiki Bellingham batnaði hraðar en búist var við „Sérfræðingarnir sem hafa spáð okkur tólfta sætinu“ Varamaður Mikaels skoraði jöfnunarmarkið Lárus Orri: Fórum í „Fuck you mode“ Sparkað í klof liðsfélaga Kolbeins en sigurinn sóttur Uppgjörið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Meiðslahrjáði miðvörðurinn lætur gott heita Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-1 | Eyjamenn náðu ekki upp í efri hlutann Hundfúll út í Refina Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjá meira