Davíð dæmdur fyrir meiðyrði 14. júní 2004 00:01
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Davíð Oddsson forsætisráðherra fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa. Forsætisráðherra sagði í viðtali við fjölmiðla í nóvember síðastliðnum, í tengslum við söluna á eignum Jóns, að þau viðskipti hefðu þann brag að verið væri að kaupa og selja þýfi og að við blasi að maður nokkur sé mesti skattsvikari Íslandssögunnar og banki standi fyrir því að losa eignir hans héðan. Jón stefndi Davíð fyrir meiðyrði og krafðist þess að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk. Einnig krafðist hann þriggja milljóna króna í miskabætur. Í niðurstöðu Héraðsdóms nú rétt fyrir hádegið segir að með ummælum sínum, um að viðskiptin hafi haft yfirbragð þess að höndlað væri með þýfi, hafi Jóni ekki verið líkt við þjóf og forsætisráðherra hafi haft fyrirvara með tilvísun í skattrannsókn á Jóni. Fyrirvarinn hafi hins vegar verið svo óljós að ummælin hafi mátt misskilja þannig að forsætisráðherra væri að halda því fram að Jón væri þjófur. Einnig segir dómurinn að með því að segja að við blasi að Jón sé mesti skattsvikari Íslandssögunnar, með tilvísun í skattrannsóknina, fái sú skoðun ekki næga stoð í ummræddri skýrslu rannsóknarinnar. Dómurinn taldi annmarkana á ummælunum ekki stórvægilega eða til þess fallna að valda stórfelldu tjóni á æru Jóns og dæmdi honum því ekki miskabætur, en að ummæli forsætisráðherra um Jón Ólafsson væru dauð og ómerk.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira