Fyrsta loðnan í land 25. júní 2004 00:01
Fyrsti loðnufarmur vertíðarinnar barst á land í Bolungarvík í dag með Gullbergi. Skipstjórinn segir nóg af loðnu og óhætt sé að veiða meira. Honum finnst út í hött að geyma loðnuna fyrir þorskinn og segir að taka þurfi á loðnuáti hvala. Áhöfnin á Gullbergi landaði um 1200 tonnum í Bolungarvík í dag, en aflann fékk hún í sjö köstum á innan við sólarhring norðaustur af Horni. Skipstjórinn, Eyjólfur Guðjónsson, segir að vel hafi gengið að finna loðnuna. Hann sagði erfitt að meta fjöldann en sagði þetta líta vel út. Að sögn Eyjólfs notuðust þeir við hátíðniasdik til að finna loðnuna. Hann taldi að þetta væri mjög hefðbundin sumarloðna. Loðnan virðist vera á norðurleið, en Gullbergið tekur þátt í rannsóknarleiðangri ásamt fjórum öðrum skipum og hefur leyfi til að fara tvo túra. Að mati Eyjólfs er óhætt að veiða mun meira en það. Hann segist ekki trúa öðru en að Hafrannsóknastofnunin taki undir þá skoðun. Eyjólfur telur að taka þurfi á því hversu mikið hvalir éta af loðnu, en telur ekki mikið vit í því að geyma loðnuna fyrir þorskinn eins og nefnt hefur verið. Þorskurinn éti ekki loðnuna nema hún syndi nálægt honum, það geri hún hins vegar ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Erlent Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Innlent „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fleiri fréttir Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Sjá meira