Innlent

Stauraskelfar teknir úr umferð

Reykjavíkurlögreglan tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt vegna ölvunaraksturs. Tveir þeirra voru reyndar ekki lengur á ferð þegar lögregla skarst í leikinn, því þeir höfðu ekið bílum sínum á sitt hvorn ljósastaurinn og eyðilagt bílana, en sluppu þó báðir ómeiddir. Þeir voru vel við skál, en auk þess voru tveir teknir í átaki lögreglu, sem hófst eftir miðnætti, þar sem 80 ökumenn voru stöðvaðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×