Morð í Keflavík? 13. nóvember 2004 00:01
Lögreglan í Keflavík rannsakar andlát dansks hermanns í nótt og er útlendingur í haldi lögreglu, grunaður um að vera valdur að láti hans. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Keflavík kemur fram að henni hafi verið tilkynnt um það laust upp úr klukkan fjögur í nótt að danskur hermaður væri slasaður á veitingastað í Keflavík. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann lést skömmu síðar. Vitni segja að hann hafi verið sleginn af einum gesta staðarins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að hinn látni hafi verið 33 ára gamall danskur hermaður sem kom til landsins í gærkvöldi með herflugvél danska hersins og gisti ásamt félögum í flugáhöfninni á hóteli í Keflavík. Í gærkvöldi mun hann hafa farið með félögum sínum út að skemmta sér í miðbæ Keflavíkur. Atburðurinn átti sér stað á veitingastaðnum Traffic, Hafnargötu 30, Keflavík. Að sögn vitna gerðist atburðurinn framan við bar veitingastaðarins. Hinn grunaði mun hafa slegið hinn látna einu höggi á höfuðið og farið síðan rakleitt út af veitingastaðnum. Hann er 29 ára gamall breskur ríkisborgari sem er búsettur hér á landi og var hann handtekinn á heimili sínu skömmu síðar. Virtist hann þá talsvert mikið ölvaður. Þegar lögregla kom á staðinn var búið að færa hinn látna inn í starfsmannaðstöðu skemmtistaðarins þar sem sjúkraflutningamenn voru að gera á manninum endurlífgunartilraunir. Ekkert blóð var sjáanlegt á vettvangi eða á hinum látna, en nákvæm rannsókn á vettvangi hefur ekki farið fram. Í tilkynningu lögreglu segir að málið sé á frumrannsóknarstigi og ekki hægt að gefa nánari upplýsingar um atburðinn fyrr en eftir helgina.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira