Íhugar að leggja skóna á hilluna 3. nóvember 2004 00:01 "
Kosningarnar í Bandaríkjunum eru efstar í huga mér núna. Það verður spennandi að sjá hvor leiðir þar," segir Sunna Gestsdóttir, frjálsíþróttakona í fremstu röð: "Það virðist sem flestir Evrópubúar vilji fá annan forseta en Ameríkaninn virðist ekki vera á sama máli." Sunna flutti í haust frá Blönduósi í Kópavog. Hún æfir frjálsar í íþróttahúsinu Fífunni og segir helsta kostinn þann að nú taki það hana einungis nokkrar mínútur að fara á æfingar. Hún keyrði áður milli Blönduóss og Sauðárkróks til æfinga: "Það er munur að vera fjórar mínútur á æfingu heldur en fjörutíu. Þetta er allt miklu auðveldara núna." Sunna stendur á krossgötum. Hún leitar styrktaraðila til að halda sér meðal þeirra bestu: "Ef ég fæ styrktaraðila held ég áfram að stefna upp á við en ef ég fæ enga þá er ég jafnvel að huga að því að setja skóna á hilluna og einbeita mér að mínu námi." Sunna tók hlé á sálfræðinámi sínu árið 1999: "Ég fór í barneignarfrí og flutti svo til útlanda. Þannig að ég er að taka upp þráðinn aftur. Ég hef tekið nokkur fög svona í sjálftilbúnu fjarnámi til að halda mér aðeins gangandi. En núna hef ég ákveðið að setjast á skólabekk." Sunna æfir með félaginu Breiðabliki: "Ég æfi með frænku minni, Sigurbjörgu Ólafsdóttur. Við höfum góðan stuðning hvor af annarri. Það er gott að hafa einhvern svipaðan og maður er sjálfur þannig að maður sé ekki einn að hlaupa á undan eða eftir strákunum." Næsta mót Sunnu er innanhússmót í janúar. Þau koma svo koll af kolli og gangi vel að útvega styrk stefnir hún á Evrópumeistaramótið í mars: "Ég bíð eftir að sjá lágmörkin og hvort maður eigi að setja stefnuna þangað."
Innlent Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Sjá meira