Innlent

Hafði þrjá tíma til að fela byrði

Maðurinn sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi indónesískrar barnsmóður sinnar, er talinn hafa haft þrjár klukkustundir til þess að koma byrðinni fyrir, eftir að til hans sást bera eitthvað þungt út úr íbúð sinni, á sunnudagsmorgun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er lögreglan sannfærð um að Sri Rahmawati hafi verið myrt, og lík hennar falið. Meðal annars þess vegna hefur ekki verið gerð skipuleg leit að henni. Mikið blóð fannst í íbúð og bíl mannsins sem hefur verið handtekinn vegna málsins, og voru sýni af því send til DNA rannsóknar til Noregs. Sýnin bárust ekki þangað fyrr en síðastliðinn föstudag, og því einhverjir dagar áður en niðurstöður berast úr rannsókninni. Sjónarvottur hefur sagt lögreglunni að hann hafi séð hinn handtekna bera þunga byrði út úr íbúð sinni, á sunnudagsmorgun, og á því sem hann hafi séð, sé hann viss um að það hafi verið mannslíkami. Sjónarvotturinn segir að þetta hafi verið um hádegisbilið, og samkvæmt heimildum fréttastofunnar sást maðurinn aftur um þrjúleytið, í stórmarkaði. Á þeim tíma getur hann hafa farið um stórt svæði til þess að fela byrði sína. Hinn handtekni heldur fast við framburð sinn um að hann sé ekki valdur að hvarfi Sri Ramawati. Lögreglan vonar að þegar niðurstöðurnar berist frá Noregi muni hann sjá að öll sund séu lokuð, og vísa á sambýliskonu sína, fyrrverandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×