Innlent

Fékk yfir sig sperrur úr stæðu

Alefli ehf þarf að greiða manni tæplega 1,3 milljónir króna vegna vinnuslyss sem hann lenti í árið 1999. Maðurinn slasaðist þegar ysta röð úr timburstafla féll á bak hans og herðar þar sem hann vann við að færa sperrur á vinnusvæði Aleflis. Fyrirtækið bar að slysið hefði orðið vegna aðgæsluleysis mannsins, en dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækinu hafi borið að tryggja að fyllsta öryggis væri gætt á vinnustaðnum. Dómurinn var kveðinn upp fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, miðvikudaginn 14. júlí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×