Viggó eða Geir sem tekur við? 29. september 2004 00:01
Guðmundur Þ. Guðmundsson, fráfarandi landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, segist hafa ákveðið fyrir nokkru síðan að skipta um starfsvettvang. Honum finnst þetta réttur tímapunktur með hliðsjón af næstu verkefnum landsliðsins, þ.e. World Cup nú í haust og heimsmeistaramótinu í Túnis í janúar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í dag í kjölfar afsagnar Guðmundar. Guðmundur tók fram að Handknattleikssamband Íslands hafi viljað að hann héldi áfram með liðið þar til samningur hans rynni út þann 1. maí á næsta ári. Honum fannst hins vegar rétt að gera það ekki. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Stöðvar 2 og Sýn mun Viggó Sigurðsson eða Geir Sveinsson taka við þjálfun landsliðsins. HSÍ vildi ekkert láta uppi um arftaka Guðmundur en sagði niðurstöðu í því máli að vænta á næstu 2-4 vikum. HSÍ hefur sent frá sér tilkynningu vegna afsagnar Guðmundar. Þar segir: „Hér með tilkynnist að Guðmundur Guðmundsson, þjálfari A-landsliðs karla hefur óskað eftir því við stjórn Handknattleikssambands Íslands að láta af störfum sem þjálfari liðsins. Guðmundur hóf störf sem landsliðsþjálfari Íslands 1. maí 2001 og hefur á þessu tímabili stjórnað landsliðinu í 97 leikjum og þar með 4 stórkeppnum sem eru: EM 2002 sem fram fór í Svíþjóð þar sem liðið lenti í 4.sæti. HM í Portúgal 2003 þar sem liðið lenti í 7. sæti og vann sér rétt til þátttöku á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004. EM 2004 sem fram fór í Slóveníu þar sem liðið lenti í 13.sæti. Ólympíuleikunum í Aþenu þar sem liðið lenti í 9. sæti. Eins og á ofangreindu má sjá hefur íþróttalegur árangur landsliðsins undir stjórn Guðmundar verið með miklum ágætum. Liðið hefur nú þegar unnið sér rétt til þátttöku á 5. stórkeppninni á þessu tímabili og er það Heimsmeistaramótið í Túnis sem fram fer í janúar 2005. Stjórn Handknattleikssambands Íslands, landsliðsnefnd og starfsmenn þakka Guðmundi Guðmundssyni fyrir frábært samstarf á þessu tímabili.“ Nánar verður fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld
Innlent Íþróttir Mest lesið Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Körfubolti Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Golf Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Fótbolti Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Enski boltinn Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Íslenski boltinn Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Enski boltinn Vængmennirnir fimm sem United vill losna við Fótbolti Fleiri fréttir Hera hafnaði í fimmta sæti á Evrópumótinu Scheffler tryggði sér sinn fjórða risatitil Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Messi nú með fleiri mörk en Ronaldo Gömul Boston Celtics stjarna semur við Los Angeles Lakers Stefán Ingi með þrennu í fyrri hálfleik Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Giftu sig en gáfu síðan allar brúðkaupsgjafirnar Ísak Snær opnaði markareikninginn hjá Lyngby Kærastinn kom henni í opna skjöldu í markinu eftir hundrað kílómetra hlaup Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Kolbeinn lagði upp sigurmarkið Frankfurt kann það betur en flest félög að græða pening á framherjum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Fengu gullverðlaun sín loksins afhent 28 árum of seint Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið „Forréttindi fyrir okkur sem eru nærri honum að fá að verða vitni að þessu“ Fyrsta konan til að þjálfa karlalið í Brasilíu Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Búið að gera tilboð í Ederson og City horfir til Burnley Vængmennirnir fimm sem United vill losna við Dagskráin í dag: Stórleikur í Bestu-deildinni og lokadagur The Open Ætlar að vera lengi hjá Spurs: „Ég hef aldrei verið rekinn“ Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Sjá meira