Aukast mest hjá þeim launalægstu 20. nóvember 2004 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir það einfaldlega rangt að skattar lækki mest hjá hátekjufólki. Ráðstöfunartekjur aukist mest hjá þeim sem minnst hafa og langmest hjá barnafjölskyldum. Hann segir ennfremur að Kyoto-bókunin, sem gerði Íslendingum kleift að losa meiri mengun út í andrúmsloftið, hefði leitt til þess að hægt væri að lækka skatta. Forsætisráðherra flutti ræðu á miðstjórnarfundi Framóknarflokksins í dag þar sem hann ræddi mest skattalækkanirnar. Hann sagði að það hefði verið deilt á stjórnina fyrir að ætla að lækka skatta mest hjá þeim tekjuhærri, en það væri einfaldlega rangt. „Eins og allir sjá munu ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa lægri tekjur og miðlungstekjur hækka mest. Ráðstöfunartekjur almennt munu hækka um 4,5% vegna þessara aðgerða en langmest hjá barnafjölskyldum, og barnafjölskyldum meðö millitekjur,“ sagði Halldór. Halldór sagði ennfremur að ekki væri ástæða til að óttast að stöðugleikanum væri ógnað - skattalækkanirnar byggðust á traustum grunni. Og í raun væri sérákvæði Íslendinga í Kyoto-bókuninni, um að fá að losa 1,6 milljónir tonna af koltvísýringi, forsendan fyrir stóriðju sem hefði aftur leitt til betri efnahags og þar með tækifæra til skattalækkana. Staðreyndin væri sú að stjórnin hafi lagt grunn að því að þetta var mögulegt. Halldór sagði hins vegar að ef allir fengju jafnmiklar launahækkanir og kennarar væri staðan önnur og skuggalegri. Þjóðfélagið gæti ekki þolað það; það myndi leiða til verðbólgu sem yrði til þess að rýra kjör allra
Fréttir Innlent Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent Fleiri fréttir Kári segir Amgen hafa beitt fantaskap til að losna við hann Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Sjá meira