Kjarasamningar sliga landvinnslu 10. október 2004 00:01
Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir kjarasamninga við sjómenn skýra bága stöðu landvinnslu. Hann spáir endalokum landvinnslu ef samtök sjómanna ljái ekki máls á breytingum á hlutaskiptakerfinu. Formaður Sjómannasamtakanna segir þennan málflutning ómálefnalegan. "Kjarasamningar við sjómenn skýra að verulegu leyti bága stöðu fiskvinnslu í landi. Hlutaskiptakerfi sjómanna stendur landvinnslunni fyrir þrifum," sagði Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnuslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í erindi sínu á nýafstöðnum aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva. Erindi Sigurgeirs fjallaði um stöðu fiskvinnslunnar með hliðsjón af launakerfi sjómanna og mismunandi samkeppnisstöðu landvinnslu og sjóvinnslu. "Þróun undanfarinna ára hefur verið að fiskvinnsla í landi hefur dregist saman. Ég held að þessi þróun muni halda áfram, að óbreyttu. Þess vegna gætum við orðið vitni að miklum og örlagaríkum sviptingum að þessu leyti á allra næstu árum," sagði Sigurgeir. Kom fram í máli hans að vanda fiskvinnslunnar mætti meðal annars rekja til þess að stéttarfélög sjómanna hefðu náð því fram í kjarasamningum á sínum tíma að festa fjölda manna í áhöfn skipa. "Ef hægt væri að fækka mönnum á þeim skipum sem afla fyrir landvinnslu væri hægt að minnka kostnað sem myndi koma landvinnslunni til góða, auk þess að borga sjómönnunum sem eftir væru hærri laun," sagði Sigurgeir í samtali við Fréttablaðið Nefndi Sigurgeir Sólbaksmálið í ræðu sinni og sagði álitaefni kristallast í því. "Sjómenn ríghalda í arfavitlaust hlutaskiptakerfi sem leiðir af sér að engin þróun er í landvinnslu og sjósókn ferskfisksskipa.," sagði Sigurgeir og bætti við: "Komi sjómannasamtökin ekki til móts við útvegsmenn og ljái máls á eðlilegri mönnun skipa og þá í samræmi við þörf, eins og fiskvinnslufólk hefur gert, mun fiskvinnsla í landi smám saman leggjast af:" Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasamtaka Íslands, segir málflutning Sigurgeirs ómálefnalegan og að það væri einfaldlega rangt hjá Sigurgeiri að hlutaskiptakerfi sjómanna stæði landvinnslunni fyrir þrifum. "Þessi maður er varamaður í stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna og er bara málpípa sambandsins. Ég held að þessi maður hafi ekki hundsvit á þessum málum og honum væri nær að koma í Karphúsið og ræða málin við okkur þar," sagði Sævar.
Fréttir Innlent Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Sjá meira