Reynt var að þrífa blóð í íbúðinni 12. júlí 2004 00:01
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var reynt að þrífa burt blóð í íbúð mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að eiga þátt í hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, áður en rannsókn lögreglu hófst. Niðurstöðu DNA-rannsóknar á blóði sem fannst í íbúð og jeppabifreið mannsins er enn beðið. "Við erum náttúrlega bara að vinna að okkar rannsókn," segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík. Hann vildi hvorki játa því né neita hvort sést hafi til mannsins við grunsamlega iðju á sunnudaginn fyrir rúmri viku, daginn áður en tilkynnt var um hvarf konunnar. Heimildir herma að þá hafi sést til mannsins við heimili hans í Stórholti þar sem hann burðaðist með eitthvað fyrirferðarmikið og innpakkað og kom fyrir í jeppabifreið sinni. Hilmar Baldursson, lögmaður mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segist ekki vera farinn að fá rannsóknargögn að ráði frá lögreglu. "Það fer nú samt sjálfsagt að styttast í það," sagði hann og gerði ráð fyrir því að fá einhver gögn um eða upp úr miðri viku þegar niðurstöður DNA-rannsóknar sem fram fór í Noregi lægju fyrir. Taldi hann að niðurstöðu yrði jafnvel að vænta í dag eða á morgun. Tilgangur DNA-rannsóknarinnar er að skera úr um hvort blóð sem fannst á rannsóknarvettvangi sé úr konunni sem saknað er. Sumir íbúar í næsta nágrenni við staðinn þar sem rannsókn lögreglu fer fram í Stórholti segja töluvert ónæði af nábýlinu við vettvanginn. Einn greindi til dæmis frá því að um síðustu helgi hafi safnast saman í garðinum við húsið drukknir unglingar og látið mynda hvert annað fyrir framan staðinn. Umræddur nágranni var orðinn nokkuð þreyttur á athyglinni sem beinist að íbúðargötu hans og velti fyrir sér hvort lögregla færi ekki að telja tímabært að taka niður gula borða og annað sem auðkenndi vettvang rannsóknarinnar. Þar fengust hins vegar þær upplýsingar að lögreglan yrði við rannsóknir í Stórholtinu í nokkra daga til viðbótar. Ekki fékkst staðfest hjá lögreglu að reynt hafi verið að þrífa burt blóð í íbúð eða bíl mannsins sem er í gæsluvarðhaldi, áður en rannsókn málsins hófst.
Fréttir Innlent Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Sjá meira