Ný lög auka vöruábyrgð verslana 12. júlí 2004 00:01
Verslanir eru ábyrgar fyrir því að vörur sem þær selja fullnægi öryggiskröfum samkvæmt lögum sem nýlega tóku gildi. Í lögunum segir jafnframt að Löggildingarstofan geti stöðvað sölu á vörum sem kunna að hafa hættu í för með sér. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu. Lögin sem um ræðir er breyting á lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu og tóku gildi í lok maí sl. Lögin ná aðeins til sérvöru sem sérlög gilda ekki um, eins og matvæli, lyf o.fl. Þannig ná lögin ekki til galla í matvöru en hins vegar til reiðhjóla, t.d. ef fótstigið dettur af við fyrstu notkun. Lögin ná einnig til vöru sem fylgir þjónustu. Þjónusta í þessu samhengi gæti t.d. verið aðili sem býður uppá hestaleigu og er þá ábyrgur fyrir því að reiðhjálmar sem hann lætur viðskiptavinum í té fullnægi öryggiskröfum. Komi í ljós að vara geti valdið skaða ber versluninni sem seldi vöruna að tilkynna um það til Löggildingastofu sem tekur ákvörðun um framhaldið. Önnur nýjung í lögunum er ákvæði um að hafi verið settir staðlar um öryggi og virkni vöru hér á landi, verði varan að vera þeim eiginleikum gædd sem staðlarnir segja til um. Annars er ekki leyfilegt að selja hana. Lögin kveða einnig á um merkingar og framsetningu vörunnar. Þannig þarf að vera fyrirsjáanlegt hvaða afleiðingar notkun vörunnar hefur og varnaðarorð ef um það er að ræða. Ef upp kemur vafi um hvort framleiðandi hefur sett nægjanlegar upplýsingar af þessu tagi á umbúðirnar gæti verið ráðlegt að skjóta málinu til Löggildingastofu eða viðkomandi eftirlitsstjórnvalds. Samkvæmt upplýsingum frá Löggildingastofu verða bráðlega birtar nánari upplýsingar um vinnulag og meðferð þessara mála á heimasíðu stofnunarinnar, www.ls.is. Löggildingastofan mun einnig á næstunni halda kynningarfund þar sem farið verður yfir málið.
Fréttir Innlent Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira