Figo ætlar að gefa allt sem hann á 19. júní 2004 00:01
Luis Figo segist ákveðinn í því að láta leikinn gegn Spánverjum í dag ekki verða þann síðasta sem hann spilar í skyrtu portúgalska landsliðsins. Figo gaf það út í síðasta mánuði að EM yrði hans síðasta verkefni með landsliðinu, og hungrar hann í velgengni með liði sínu á EM. „Vitandi það að hver leikur gæti orðið minn síðasti fyrir Portúgal gerir mig enn ákveðnari í að gefa allt sem ég á fyrir liðið, þjóðina og áhangendurna. Ég mun hafa hemil á tilfinningum mínum á sem faglegastan máta þar til þátttöku okkar hér á EM lýkur," sagði Figo á blaðamannafundi í gær. Gríðarlega mikil eftirvænting ríkir fyrir leikinn og þurfa Portúgalar nauðsynlega á sigri að halda, en Spánverjum nægir jafntefli til að komast áfram í 8-liða úrslit. Taugatitringurinn í herbúðum beggja liða er í hámarki og er ljóst að þessar nágrannaþjóðir og erkifjendur munu ekki aðeins keppa í fótbolta, heldur einnig um að viðhalda þjóðarstoltinu. „Mín fyrstu viðbrögð þegar ég sá að við værum í riðli með Spánverjum var að sá leikur yrði gríðarlega erfiður. Bæði lið hafa á að skipa stórkostlegum knattspyrnumönnum og spila svipaðan fótbolta. Með það í huga þá býst ég ekki við opnum leik, heldur verður baráttan í fyrirrúmi," segir Figo og bætir við að það verði mjög skrítið að mæta Spánverjum. „Raul og Fernando Morientes eru góðir vinir mínir og það verður einkennilegt að spila á móti þeim,"segir Figo.
Íslenski boltinn Mest lesið Leik lokið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Íslenski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Beit andstæðing á HM Sport City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Í beinni: Breiðablik - ÍBV | Eyjamenn geta komist í efri hlutann Íslenski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: ÍA - Afturelding 3-1 | Sigurganga Skagamanna heldur áfram Meiðslahrjáði miðvörðurinn lætur gott heita Í beinni: Breiðablik - ÍBV | Eyjamenn geta komist í efri hlutann Hundfúll út í Refina Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum Sjá meira