Frábær fyrri dagur hjá Íslandi 19. júní 2004 00:01
Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum náði frábærum árangri á fyrri degi Evrópubikarmótsins sem fer fram á Laugardalsvellinum um helgina. Silja Úlfarsdóttir, Jón Arnar Magnússon og Þórey Edda Elísdóttir sigruðu öll í sínum greinum og fjölmörg persónuleg met íslensku keppendanna féllu. Silja hljóp 400 metra grindahlaup á 59,24 sekúndum í töluverðum mótvindi, en Þórey Edda var sú eina sem náði að fara yfir 4,20 metra í stangarstökkinu. Eftir það lét Þórey hækka ránna í 4,42 metra en felldi hún þá hæð í þrígang. Jón Arnar sigraði í langstökki með góðu stökki upp á 7,70 metra. Af árangri annarra einstakra keppenda bar hæst frábær tími Sunnu Gestsdóttur í 100 m hlaupi kvenna þar hún hljóp á 11,75 sekúndum, sem er undir gildandi Íslandsmeti, en því miður var meðvindur yfir leyfilegum mörkum og fæst metið því ekki staðfest. Bergur Ingi Pétursson kastaði 61,36 metra í sleggjukasti og bætti sinn persónulega árangur um tæpa þrjá metra. Með kastinu tryggði Bergur sér þátttökurétt á HM 19 ára og yngri. Guðmundur Karlsson landsliðsþjálfari segir árangur íslenska liðsins fara fram úr sínum björtustu vonum, sérstaklega þegar horft til þess að marga lykilmenn vantar í hópinn vegna meiðsla. „Þetta var glimrandi dagur og fólk að standa sig alveg frábærlega. Við erum að fá mun fleiri stig en ég gerði ráð fyrir, og þá sérstaklega karlarnir. Ég er mjög sáttur," sagði Guðmundur í samtali við Fréttablaðið í gær. Karlalandsliðið er í fimmta sæti af átta liðum eftir þennan fyrri dag og hefur hlotið 43 stig. Þetta er mun betri árangur en á síðasta ári, þegar liðið var í sjöunda sæti eftir fyrri daginn. Konurnar standa í stað; eru í 6. sæti með 40 stig. Guðmundur segir Þóreyju Eddu líta gríðarlega vel út þessa dagana og voru tilraunir hennar við 4,42 metra mjög góðar. „Ég held að það megi segja að hún hafi aldrei verið í betra formi," segir Guðmundur og er það góðs viti fyrir Ólympíuleikana í Aþenu sem haldnir verða í ágúst. Keppnin heldur áfram á Laugardalsvellinum í dag og þá munu Jón Arnar Magnússon og Einar Karl Hjartarsson verða í eldlínunni á meðal fjölda annarra, en mótið er það sterkasta sem nokkurn tíma hefur verið haldið á Íslandi.
Íþróttir Mest lesið Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Sport Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enski boltinn Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Íslenski boltinn Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Enski boltinn Fleiri fréttir Klappað fyrir fyrstu konunni sem dæmdi í MLB Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar „Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Vilja dæma skíðastökkvarana í bann vegna saumaskandalsins Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Viðbeinsbrotnaði þegar hann fagnaði sigri í Nascar Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Dagskráin í dag: Besta deild karla á sviðið Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Barcelona rúllaði yfir Como Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Uppgjörið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Hallgrímur: Ef þú slakar á 1-3% er þetta fljótt að breytast Slot: Sá sem truflaði hafði örugglega ekkert illt í hyggju Guðrún Brá Íslandsmeistari eftir spennandi umspil Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Brøndby náði í sigur heimafyrir Sjá meira