Leikskólinn fyrsta skólastigið 18. júní 2004 00:01
Allt stefnir í að leikskólanám fimm ára barna í Reykjavík verði gjaldfrjálst að hluta og leikskólinn viðurkenndur sem fyrsta skólastigið. Kostnaður borgarinnnar vegna þessara breytinga verður um 100 milljónir króna á ári. Starfshópur um aukna samþættingu leikskóla og grunskóla í borginni leggur til að frá með haustinu verði fimm ára börnum boðið gjaldfrjálst leikskólanám í þrjár stundir fyrri hluta dags. Tillagan verður lögð fyrir borgarráð á þriðjudag til samþykktar en ráðið hefur þegar tryggt fjárveitingu í verkefnið fyrir þetta ár. Lagt er til að leikskólar vinni afmarkaða námsskrá fyrir börnin þar sem áhersla verði lögð á atriði eins og félags- og samskiptahæfni, hreyfingu, málrækt og tónlist. Leikskólar verða þar með fyrsta skólastigið og hafa samstarf við grunnskólanna. Þetta á ekki síst að draga úr þeim miklu sviptingum sem fylgja því að vera á sjötta aldursári og breytast úr leikskólabarni í grunnskólanema. Sigrún Elsa Smáradóttir, formaður starfshópsins, segir það ákveðið stökk að koma inn í grunnskólann og hópurinn sé með þessu að reyna að brúa það bil. Bæði leikskólarnir og grunnskólarnir heyri nú undir borgina og því eðlilegt að reynt sé að samþætta skólastigin tvö. Sé miðað við fimm ára barn í fullri vistun eða námi, lækkar kostnaður fólks í sambúð úr tæpum 28.000 krónum á mánuði í 19.500 krónur. Einstæðir foreldrar greiða um 11.000 krónur eftir breytingu og námsmenn rúmar 15.000 krónur. Kostnaður borgarinnar verðu,r eins og áður sagði, um 100 milljónir króna á ári.
Fréttir Innlent Mest lesið Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Innlent Stillir sér upp á miðjunni Innlent Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Veður „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Erlent Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Innlent Fleiri fréttir Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Stillir sér upp á miðjunni Mikill meirihluti vill banna sölu á orkudrykkjum til barna Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og knattspyrnuþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Sjá meira