Strætó frjálst að fá upplýsingar 10. júlí 2004 00:01
Persónuvernd gerði ekki neinar athugasemdir við að lögregla veitti Strætó upplýsingar um hvort maður sem sækti um vinnu sem vagnstjóri hefði tilskilin réttindi. Framkvæmdastjóri Strætós notaði tregðu á slíku sem afsökun fyrir því að próflaus vagnstjóri fékk vinnu hjá fyrirtækinu. Upp komst að bílstjóri hjá Strætó bs. hafði ekki ökuréttindi, þegar hann keyrði á, í tvígang, á sömu vaktinni. Maðurinn hafði verið sviptur ökuskírteini en ekki skilað því inn og framvísaði því þegar hann sótti um vinnu, sem bílstjóri. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó, bs. sagði í viðtölum við fjölmiðla, að hann ætti í viðræðum við starfsmenn hjá lögreglustjóraembættinu, um hugsanlegar aðgerðir. Í samtali við Fréttablaðið, í dag, segir Ásgeir að það sé ekki sjálfgefið að þeir geti fengið upplýsingar, til dæmis um hvort skírteini séu í gildi, þar sem það flokkist undir persónuvernd. Fréttastofan hefur talað við allmarga aðila hjá lögreglunni, og voru þeir sammála um að þeir gætu ekki séð neitt því til fyrirstöðu að upplýsa Strætó um hvort ökuskírteini væru gild, ef eftir því yrði leitað, skriflega. Sigrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Persónuverndar, kvað jafnvel sterkar að orði. Hún sagði í samtali við fréttastofuna að það væri af og frá að Persónuvernd myndi gera athugasemdir við að slíkar upplýsingar væru veittar. Sigrún sagði orðrétt: "Þegar þú sækir um vinnu þarftu að leggja fram skilríki sem sýna að þú sért fær um að gegna henni. Við myndum aldrei gera athugasemdir við það."
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira