Innlent

Skýrsla Ríkisendurskoðunar röng

Fjármálaráðuneytið setur verulega ofan í við Ríkisendurskoðun vegna skýrslu hennar um framkvæmd fjárlaga í tilkynningu sem ráðuneytið hefur sent frá sér. Eru gerðar níu athugasemdir við skýrsluna og færð rök fyrir rangfærslum Ríkisendurskoðunar í hverju tilviki fyrir sig. Ráðuneytið segir það markleysu að gera samanburð á greiðslum til stofnana og heimildum sem á rekstrargrunni eru. Það gefi ranga mynd af afkomu ríkissjóðs að blanda saman með þeim hætti rekstara- og greiðslugrunni með þeim hætti sem Ríkisendurskoðun geri. Það leiði til þess að settar séu fram misvísandi niðurstöður um afkomu ríkissjóðs. Ennfremur er fundið að því hversu almenn skýrslan er um fjármál ríkisins og þróun þeirra í stað þess að fjalla um framkvæmd fjárlaga fyrir síðasta ár eins og hugmyndin hafi verið. Aðeins í tveimur köflum sé fjallað beinlínis um þá framkvæmd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×