Umfangsmikil leit að Sri Rahmawati 16. júlí 2004 00:01
Lögregla hefur staðið fyrir umfangsmikilli leit að Sri Rahmawati, 33 ára gamalli konu sem saknað hefur verið í nær tvær vikur. Leitað hefur verið á höfuðborgarsvæðinu og lögreglsa notið aðstoðar hjálparsveita. Lögreglan í Reykjavík sendi frá sér tilkynningu í kjölfar þeirrar umræðu sem orðið hefur um rannsóknina en lögreglu þótti rétt að upplýsa fjölmiðla um ákveðin atriði sem varða málið. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að unnið hafi verið markvisst að rannsókn málsins og að rætt hafi verið við fjölda fólks og hugsanleg vitni. „Leit hefur farið fram á nokkrum stöðum og hefur lögregla notið aðstoðar björgunarsveita, m.a.sérhæfðra leitarhópa. Þyrla hefur verið notuð til að skoða ákveðin svæði,“ segir í tilkynningu lögreglu. Þá kemur fram að lögreglumenn með leitarhunda hafi farið um á völdum stöðum og að skipulega hafi verið farið um staði í nágrenni Reykjavíkur. Í íbúð mannsins, sem situr í gæsluvarðhaldi og bíl hans fannst blóð sem verið er að athuga hvort komið hafi úr Sri. Sú athugun fer fram með rannsókn á erfðaefni í blóðinu og er gerð í Noregi. Að sögn Sigurbjarnar Víðis Eggertssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík, standa vonir til að niðurstaða liggi fyrir í byrjun næstu viku. "Við látum væntanlega fjölmiðla vita þegar niðurstaðan berst," sagði hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira