Brunnlokunum bísað 14. nóvember 2004 00:01
Gripdeildir af óvenjulegu tagi gera Bretum nú lífið leitt en þjófnaður á járnsteyptum brunnlokum hefur færst þar mikið í vöxt að undanförnu. Rétt eins og hérlendis eru brunnarnir ofan í götum og strætum og er einfalt mál að fjarlægja lokin á þeim þótt þung séu. Breska tímaritið The Economist segir verðhækkanir á málmum til bræðslu orsök þessara þjófnaða en algengt er að þjófarnir selji hvert lok á 5-7 pund, sem jafngildir um 700-1000 krónum. Því þarf ekki að stela mörgum lokum til að fá bærilegan ágóða upp úr krafsinu. Lok af eldri gerð eru vinsælli en hin nýrri þar sem þau eru þyngri. Tjónið sem samfélagið verður fyrir vegna þjófnaðanna er umtalsvert. Í Newham-hverfi í Lundúnum hefur 260 lokum verið stolið á undanförnum vikum, að verðmæti 60.000 pund, eða 7,5 milljónir króna. Til allrar hamingju er ekki vitað um slys á fólki sem hefur hrapað ofan í óvarða brunnana. Ýmis ráð hafa verið nefnd til að sporna við brunnlokaþjófnuðum, til dæmis að festa lokin með einhvers konar hjörum eða að upp verði komið eftirlitsmyndavélum í námunda við götubrunna. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, er þjófnaður á brunnlokum ekki ennþá teljandi vandamál á Íslandi. "Það er ekki mikill áhugi á þeim í krimmaheiminum hér," segir hann. Brunnlok af algengri tegund kostar um 15.000 krónur en íslenskar málmbræðslur veita lokum frá almenningi ekki móttöku.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira