Slæm kennsla í upplýsingatækni 26. ágúst 2004 00:01
Helmingur stúdenta telur sig fá slæma kennslu í upplýsingatækni í framhaldsskóla, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands. Misjöfn geta nemenda er sögð valda deildinni vandkvæðum. Ársæll Valfells, lektor sem umsjón hafði með rannsókninni segir einungis um þriðjung stúdenta telja sig hafa fengið góða upplýsingatæknikennslu í framhaldsskóla og 16 prósent telji kennsluna hvorki hafa verið góða né slæma. Á ráðstefnu sem haldin verður í dag og þar sem niðurstöður rannsóknarinnar kynntar, er þeirri hugmynd velt upp hvort ekki þurfi að gera kröfu um samræmda kennslu í upplýsingatækni í framhaldsskólum. Dæmi munu vera um að nemendur hafi ekki til að bera lágmarksþekkingu á einföldustu aðgerðum í ritvinnslu og töflureiknum þegar þeir hefja nám við háskólann. Ársæll segir afleiðingar þessa vera tvíþættar. Annars vegar sitji nemendur ekki við sama borð við upphaf náms, auk þess sem dýrmætur tími fari í að bregðast við vandanum. Ársæll segir að rannsóknin hafi náð til nemenda viðskipta- og hagfræðideildar og hann viti ekki til að svipuð könnun hafi verið gerð í öðrum deildum eða skólum. Hann segist þó hafa heyrt af því að misjöfn tölvukunnátta nemenda hafi valdið vandkvæðum í öðrum deildum skólans, en það hafi þó ekki verið kannað sérstaklega. "En það sem við sjáum, er að kennsla okkar í upplýsingatækni er mjög vinsæl hjá nemum úr öðrum deildum þar sem minni áhersla er á slíka kennslu," segir Ársæll. Aðspurður um hvað orðið hafi til að ráðist var í rannsóknina segir hann mikilvægi upplýsingatækni í námsefni deildarinnar hafa ráðið mestu. "Áherslan hefur flust frá því að læra á tiltekin forrit yfir í að læra að hagnýta sér notkun þeirra. Þar með er kennsla í upplýsingatækni komin á annað stig og verður að gera ráð fyrir því að nemendur ráði við notkun helstu forrita og eigi auðvelt með að tileinka sér nýja tækni," segir hann og bætir við að niðurstöður rannsóknarinnar hafi þegar orðið til að breyta skipulagi upplýsingatæknináms við deildina. Málþing Viðskipta- og hagfræðideildar er haldið í Lögbergi milli klukkan tvö og fjögur í dag og er öllum opið.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira