Nuno Gomes hetja Portúgala 20. júní 2004 00:01
Portúgalar tryggðu sig áfram í átta liða úrslitin á EM í gærkvöld með naumum 1-0 sigri á nágrönnum sínum, Spánverjum. Mikil spenna var í riðlinum fyrir leikinn og með jafntefli hefðu Spánverjar komist áfram en gestgjafarnir ekki. Eins og við mátti búast einkenndi taugaspenna leikinn sem þó bauð upp á ágætis tilþrif inn á milli og nokkur dauðafæri litu dagsins ljós og mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Sigurmarkið gerði Nuno Gomes á 57. mínútu upp á eigin spýtur, sneri sér laglega og þótt skotið hafi ekki verið sérlega fast þá var það gríðarlega nákvæmt og óverjandi fyrir Spænska markvörðinn. Spánverjar reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna metin og leikurinn opnaðist upp á gátt. Harmsaga þeirra á stórmótum hélt þó áfram og enn eina ferðina veldur þetta mikla knattspyrnuland vonbrigðum eftir miklar væntingar að venju. Þjálfari Spánverja, Inaki Saez, var að vonum niðurlútur eftir leik og nánast öruggt má telja að hann hafi stjórnað Spænska landsliðinu í síðasta sinn: "Við lögðum okkur alla fram í fyrri hálfleik en skorti ástríðuna. Hana höfðu Portúglar hins vegar en mark þeirra kom úr hálffæri og þegar við síst bjuggumst við því. Eftir það þurftum við að breyta leik okkar og fengum nokkur mjög góð færi en boltinn vildi bara ekki inn," sagði Saez og bætti við: "Leikmenn mínir eru gjörsamlega niðurbrotnir núna eins og við má búast. Það voru gerðar miklar væntingar til okkar fyrir mótið, eins og venjulega, en því miður stóðum við ekki undir þeim og okkur var greinilega ekki ætlað að komast áfram." Fyrirliði Portúgala, Luis Figo, var stoltur eftir leik en liðið náði að snúa við blaðinu eftir afar óvænt tap gegn Grikkjum í fyrsta leik, með tveimur sigrum: "Við unnu vel fyrir þessum sigri og getum verið stoltir af frammistöðu okkar. Þegar leikið er á heimavelli er pressan óneitanlega öllu meiri en venjulega og við höfðum allir áhyggjur af því hvaða áhrif hún myndi hafa á leik okkar í keppninni. Við byrjuðum illa en snerum bökum saman og náðum takmarki okkar sem var að komast áfram úr riðlinum," sagði Luis Figo, með bros á vör.
Íslenski boltinn Mest lesið BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Fótbolti Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Fleiri fréttir Noregur - Frakkland | Úrslitaleikur um toppsætið Búið að slá markametið á HM í fótbolta Orri og Ísak mætast í æfingaleik Haaland og Ödegaard báðir á bekknum gegn Frakklandi Gætu spilað heimaleiki sína í Meistaradeildinni á heimavelli Brentford Forsetinn gaf öllum landsmönnum frí eftir að Ekvador komst áfram Líkur Skota á að komast áfram fóru úr 42 prósentum í 5,3 prósent á einum degi BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Kristinn fer til Spánar Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Sjá meira