Innlent

Slysum og misferlismálum mun fækka

"Nýju lögin fela í sér miklar réttarbætur og munu tryggja eða stuðla að öruggari viðskipum um fasteignir og meiri fagmennsku. Þau munu óefað fækka slysum og misferlismálum með því tjóni, kostnaði og leiðindum sem þeim fylgja," sagði Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. og formaður Húseigendafélagins um ný lög um fasteignasölur, sem taka gildi 1. október næstkomandi. Hann sagði að fyrri lög um fasteinasölu hafi verið "meingölluð og allsendis ófullnægjandi". Nýju lögin kæmu flestum til góða, bæði kaupendum og seljendum sem og ábyrgum og traustum fasteignasölum og fasteignamarkaðinum í heild sinni. "Í lögunum er óhjákvæmilega þrengt að þeim fasteignasölum sem eru óvandaðir og óábyrgir og standa sig ekki í stykkinu og eins almennt réttindaleysi í stéttinni," sagði Sigurður Helgi. "Böndum verður komið á svörtu sauðina og vonandi hverfa þeir að mestu. Sífellt berast fregnir af ljótum málum þar sem fasteignasalar hafa brugðist trausti og jafnvel dregið sér eða svikið út háar fjárhæðir frá grandalausum viðskiptavinum sínum. Síðustu misserin hefur keyrt um þverbak í þessum efnum og stór mál komið upp hvert ofan í annað um misferli og óvönduð vinnubrögð hjá fasteignasölum sem hafa stórskaðað viðskiptamenn þeirra og fasteignamarkaðinn í heild. Enda voru mörg og alvarleg svikamál meðal annars tilefni að setningu hinna nýju laga." Sigurður Helgi benti á að í lögunum væri mælt fyrir um sérstaka og öfluga eftirlitsnefnd sem og þarfar og mikilvægar reglur um meðferð og varðveislu fasteignasala á fé viðskiptamanna. Síðustu misserin hefði borið æ meira á að menn sem ekki hefðu löggildingu sem fasteignasalar og fullnægðu ekki skilyrðum til þess, settu á stofn fasteignasölur, ættu þær og rækju, en fengju til starfa löggiltan fasteignasala og stunduðu starfsemina í skjóli hans. Þá hefur rekstur "útibúa" farið úr böndum. Við þessu væri brugðist í nýju lögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×