Slysum og misferlismálum mun fækka 20. júní 2004 00:01 "
Nýju lögin fela í sér miklar réttarbætur og munu tryggja eða stuðla að öruggari viðskipum um fasteignir og meiri fagmennsku. Þau munu óefað fækka slysum og misferlismálum með því tjóni, kostnaði og leiðindum sem þeim fylgja," sagði Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. og formaður Húseigendafélagins um ný lög um fasteignasölur, sem taka gildi 1. október næstkomandi. Hann sagði að fyrri lög um fasteinasölu hafi verið "meingölluð og allsendis ófullnægjandi". Nýju lögin kæmu flestum til góða, bæði kaupendum og seljendum sem og ábyrgum og traustum fasteignasölum og fasteignamarkaðinum í heild sinni. "Í lögunum er óhjákvæmilega þrengt að þeim fasteignasölum sem eru óvandaðir og óábyrgir og standa sig ekki í stykkinu og eins almennt réttindaleysi í stéttinni," sagði Sigurður Helgi. "Böndum verður komið á svörtu sauðina og vonandi hverfa þeir að mestu. Sífellt berast fregnir af ljótum málum þar sem fasteignasalar hafa brugðist trausti og jafnvel dregið sér eða svikið út háar fjárhæðir frá grandalausum viðskiptavinum sínum. Síðustu misserin hefur keyrt um þverbak í þessum efnum og stór mál komið upp hvert ofan í annað um misferli og óvönduð vinnubrögð hjá fasteignasölum sem hafa stórskaðað viðskiptamenn þeirra og fasteignamarkaðinn í heild. Enda voru mörg og alvarleg svikamál meðal annars tilefni að setningu hinna nýju laga." Sigurður Helgi benti á að í lögunum væri mælt fyrir um sérstaka og öfluga eftirlitsnefnd sem og þarfar og mikilvægar reglur um meðferð og varðveislu fasteignasala á fé viðskiptamanna. Síðustu misserin hefði borið æ meira á að menn sem ekki hefðu löggildingu sem fasteignasalar og fullnægðu ekki skilyrðum til þess, settu á stofn fasteignasölur, ættu þær og rækju, en fengju til starfa löggiltan fasteignasala og stunduðu starfsemina í skjóli hans. Þá hefur rekstur "útibúa" farið úr böndum. Við þessu væri brugðist í nýju lögunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Fleiri fréttir Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Sjá meira