Ekkert varðskipanna við eftirlit 21. júlí 2004 00:01
Varðskipið Ægir kemur til hafnar í vikunni og stoppar í nokkra daga. Þá verður ekkert varðskipanna þriggja við eftirlit á landhelgislínunni. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir gæslustörf með eðlilegum hætti en skipin þurfi sitt viðhald. Áformað er að varðskipið Ægir komi til hafnar og verði í stoppi í nokkra daga en varðskipið Týr er í stoppi fram í ágúst og Óðinn væntanlega út þetta ár. Sumir hafa gagnrýnt að varpskipin skuli ekki vera öll til taks til þess að hafa með höndum eftirlit og vörslu fiskveiðilögsögunnar, eða eftirlit með öryggi sjófarenda, og telja að vegna ástandsins sé ekki hægt að gæta þessa fjöreggs þjóðarinnar með eðilegum hætti. Landhelgin sé þannig opin og óvarin á meðan mörg erlend skip sæki á landhelgislínuna. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir eðilega staðið að gæslustörfum um þessar mundir. Hann segir að ákveðið hafi verið að hafa tvö varðskip í rekstri á þessu ári en ekki sé greint frá því hvar þau séu stödd á hverjum tíma. Skipin þurfi ennfremur sitt viðhald og eitt skipanna sé notað tímabundið. Hafsteinn segir Landhelgisgæsluna nýta þau skip sem til taks séu eins vel og hún geti. Auk þess séu þyrlur gæslunnar og Fokker Friendship flugvél notaðar, sérstaklega þegar fara þarf á fjarlæg mið. Hann segir þess vegna langt frá því að starfsemi Landhelgisgæslunnar liggi niðri á meðan viðhald skipanna stendur yfir, auk þess sem hægt sé að ná skipunum úr viðgerð með um þriggja klukkustunda fyrirvara. Hægt er að hlusta á viðtal við Hafstein með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Baldur til Eyja Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira