Innlent

Sri týnd í 12 daga - engin leit

Lögreglan heldur ekki úti skipulegri leit að innflytjandanum Sri Rahmawati, sem hvarf 4. júlí síðastliðinn. Ættingjar trúa því að hún gæti verið á lífi og lögreglan útilokar það ekki, en leitar hennar samt sem áður ekki. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, telur vinnubrögð lögreglunnar litast af því að konan sem týndist er ekki af íslenskum uppruna.  Toshiki Toma minnist á Bandaríkin og segir fjölmörg dæmi um að þegar um svertingja sé að ræða sem fórnarlömb, þá leggi lögreglan minna á sig en ef um hvíta er að ræða. "Við skulum bara vona að við séum ekki að verða eins," segir Toshiki. Fjallað er um málið í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×