Leyniskýrsla um spilltan svínakóng 15. júlí 2004 00:01
Félagsmenn í Mjólkurfélagi Reykjavíkur vilja opinbera rannsókn á meintum brotum fyrrverandi stjórnarformanns félagsins, Kristins Gylfa Jónssonar. Í trúnaðarskýrslu segir að ekkert hafi komið fram í ársreikningi um 41 milljónar króna heimildarlauss peningaláns til svínabús Kristins. Lánsviðskipti við fyrirtæki Kristins Gylfa hafi verið yfir öll mörk. Í skýrslunni segir að tjón MR vegna viðskipta við fyrirtæki Kristins Gylfa nemi tæpum hálfum milljarði króna. Meðal ávirðinga á hendur Kristni Gylfa í nýrri skýrslu sem Þórarinn Viðar Þórarinsson lögmaður hefur gert fyrir stjórn MR eru viðskipti með 50 milljóna króna skuldabréf sem MR gekkst í ábyrgð fyrir á árinu 2000. Fyrirtæki Kristins Gylfa, Svínabúið Brautarholti, greiddi 7 milljóna króna skuld við MR með skuldabréfinu og fékk síðan 41 milljón króna í peningum til baka. Skuldabréfið fór skjótt í vanskil og sat MR uppi með tjónið sem ábyrgðaraðili. Kristinn Gylfi telur ekkert óeðlilegt við viðskipti þriggja fyrirtækja sinna við MR. Þórarinn Viðar segir lánsviðskipti þeirra við MR hafa farið út fyrir öll venjuleg mörk. Kristinn Gylfi sat beggja vegna borðsins sem forsvarsmaður sinna fyrirtækja annars vegar og sem stjórnarmaður MR hins vegar. Ítarlega er fjallað um málið í DV í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Bæjarstjóri í þriðja skipti Innlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Fleiri fréttir Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent