Innlent

Mótmæla kaupum á teikningum

Ungir sjálfstæðismenn mótmæla þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að kaupa allar teikningar listamannsins Sigmunds, sem hann hefur teiknað fyrir Morgunblaðið, fyrir átján milljónir króna af skattfé almennings. Ungir sjálfstæðismenn benda á að almenningur geti keypt þessar myndir í bókum Sigmunds og að þær séu auk þess aðgengilegar almenningi á opinberum bókasöfnum. Þessi fjárfesting sé því óþörf og samræmist hvorki hlutverki ríkisvaldsins né stefnu Sjálfstæðisflokksins um minnkandi ríkisafskipti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×