Innlent

Gífurlegar væntingar

Gríðarlegar væntingar eru til fyrirtækja á íslenska hlutabréfamarkaðnum sem er í algerum sérflokki á heimsvísu. Úrvalsvísitalan hefur hækkað meira en 40 prósent á árinu og hefur skilað þrefaldri ávöxtun miðað við norska markaðinn sem næstur kemst þeim íslenska. Súluritið sem birtist í Hálf fimm fréttum KB banka í dag er ákaflega sláandi. Bjartsýni er hvergi meiri í heiminum sé tekið mið af verði hlutabréfa hér á landi. Frá áramótum nemur hækkunin 40 prósentum á Íslandi en norski markaðurinn sem er í öðru sæti hækkaði um 13 prósent á sama tíma. Enn meiri er hækkunin hins vegar ef litið er til eins árs, því á því tímabili hafa fyrirtækin sem mynda úrvalsvísitöluna tvöfaldast í verði. Fyrirtæki á markaði hafa verið að skila mjög góðum árangri og greinilegt er að fjárfestar búast við að enn betri tíð sé framundan. Fjárfestar á Íslandi virðast hafa mikið fé á milli handa og eru reiðubúnir að borga hátt verð fyrir hlutabréf í þeim fáu fyrirtækjum sem eftir eru á markaði. Lengi vel var það Pharmaco sem leiddi hækkunina en nú hefur KB banki tekið við kyndlinum því hlutabréf bankans hafa hækkað um tæp 93 prósent frá áramótum. Ómögulegt er að segja hvort, hvar eða hvenær þessi þróun endar. Flestir fjármálasérfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við tala um ofþenslu en sagan ein mun leiða það í ljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×