Gífurlegar væntingar 22. júní 2004 00:01
Gríðarlegar væntingar eru til fyrirtækja á íslenska hlutabréfamarkaðnum sem er í algerum sérflokki á heimsvísu. Úrvalsvísitalan hefur hækkað meira en 40 prósent á árinu og hefur skilað þrefaldri ávöxtun miðað við norska markaðinn sem næstur kemst þeim íslenska. Súluritið sem birtist í Hálf fimm fréttum KB banka í dag er ákaflega sláandi. Bjartsýni er hvergi meiri í heiminum sé tekið mið af verði hlutabréfa hér á landi. Frá áramótum nemur hækkunin 40 prósentum á Íslandi en norski markaðurinn sem er í öðru sæti hækkaði um 13 prósent á sama tíma. Enn meiri er hækkunin hins vegar ef litið er til eins árs, því á því tímabili hafa fyrirtækin sem mynda úrvalsvísitöluna tvöfaldast í verði. Fyrirtæki á markaði hafa verið að skila mjög góðum árangri og greinilegt er að fjárfestar búast við að enn betri tíð sé framundan. Fjárfestar á Íslandi virðast hafa mikið fé á milli handa og eru reiðubúnir að borga hátt verð fyrir hlutabréf í þeim fáu fyrirtækjum sem eftir eru á markaði. Lengi vel var það Pharmaco sem leiddi hækkunina en nú hefur KB banki tekið við kyndlinum því hlutabréf bankans hafa hækkað um tæp 93 prósent frá áramótum. Ómögulegt er að segja hvort, hvar eða hvenær þessi þróun endar. Flestir fjármálasérfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við tala um ofþenslu en sagan ein mun leiða það í ljós.
Fréttir Innlent Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Sjá meira