Lífið Hellvar til Berlínar Hljómsveitin Hellvar heldur tónleika í Berlín 4. júlí næstkomandi. Um næstum því árvissan viðburð er að ræða hjá sveitinni, sem var einmitt stofnuð í borginni 2004. Lífið 30.6.2009 03:00 Vel heppnuð endurkoma Lífið 30.6.2009 02:45
Hellvar til Berlínar Hljómsveitin Hellvar heldur tónleika í Berlín 4. júlí næstkomandi. Um næstum því árvissan viðburð er að ræða hjá sveitinni, sem var einmitt stofnuð í borginni 2004. Lífið 30.6.2009 03:00
Fersk Jackson-lög Will.i.am úr hljómsveitinni Black Eyed Peas tók upp nýtt efni með Michael Jackson áður en hann lést. Hljómurinn var bæði ferskur og áræðinn. „Þessi lög kröfðust þess af fólki að fara út á dansgólfið. Auðvitað voru þau melódísk," sagði hann. Lífið 30.6.2009 02:15
Börnin áfram hjá ömmu Börnin þrjú sem poppkóngurinn Michael Jackson lætur eftir sig munu vera hjá ömmu sinni Katherine Jackson til 3. ágúst. Þann dag verður úrskurðað fyrir rétti hver mun hafa forræði yfir börnunum. Móðir Jacksons nýtur einnig þjónustu lögfræðinga við ná umráðarétti yfir eignum fallna goðsins. Lífið 29.6.2009 20:29
Eldheitur Logi og Eiður Smári Í kvöld klukkan 18:55 í sjónvarpsþættinum Ísland í dag kynnumst við 12 ára hetju sem berst við hvítblæði og átti þann draum heitastan að hitta Eið Smára Guðjohensen sem varð við ósk hans og gerði reyndar gott betur eins og við sjáum í þætti kvöldsins. Þá fóru liðsmenn Ísland í dag líka í eldheitt partý til Loga Geirssonar handboltakappa síðasta laugardag. Lífið 29.6.2009 15:48
Pönkuð Hermione Leikkonan Emma Watson, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem hin siðprúða Hermione í Harry Potter myndunum, sýnir á sér spánnýja hlið í nýjasta hefti Elle. Lífið 29.6.2009 11:41
Fjör hjá Hemma og félögum Hermann Hreiðarsson blés til styrktargolfmótsins Herminator Invitational í Vestmannaeyjum á laugardag. Heiðursgestur mótsins var Sol Campbell, félagi Hermanns hjá Portsmouth. Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar tóku þátt í mótinu sem var afar vel heppnað. Lífið 29.6.2009 06:00
Ný ræðukeppni veldur usla „Þetta er yndislegur heimur fyrir fólk að detta inn í og hafa áhuga á,“ segir Bragi Páll Sigurðarson sem ætlar að halda ræðukeppni fyrir almenning í sumar. Lífið 29.6.2009 05:00
Þjóðlög á mynddiski Það styttist í Þjóðlagahátíðina á Siglufirði sem haldin er í tíunda sinn en hún verður sett á miðvikudag. Í tilefni af afmælinu og aldar útgáfuafmælis þjóðlagasafns sr. Bjarna Þorsteinssonar gefur Þjóðlagasetrið á Siglufirði út stórglæsilegan mynddisk með upptökum sem setrið hefur gert á árunum 2005 til 2009. Alls koma fram á diskinum um 50 manns á öllum aldri og víðs vegar að af landinu. Þar á meðal eru 30 kvæðamenn og 20 manna dansflokkur sem sýnir íslenska þjóðdansa. Þá er leikið á langspil og íslenska fiðlu. Lífið 29.6.2009 04:00
Sest á skólabekk í haust Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir hyggst setjast aftur á skólabekk í haust og mun stunda nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. „Þetta er búið að blunda í mér í svolítinn tíma. Ég er búin að vera að spá í framhaldsnámi í næstum þrjú ár en alltaf hætt við þar til núna," segir Ísgerður Elfa. Hún segist kvíða því svolítið að hefja bóklegt nám aftur en hlakkar einnig mikið til að takast á við háskólanámið. Lífið 29.6.2009 03:30
Gómsætar minningar „Upprunalega hugmyndin varð til í kringum vinnu í stuttum kúrs við Listaháskólann. Þar áttum við að vinna verkefni fyrir sælgætisverksmiðjuna Nóa Síríus. Ég ákvað svo að halda verkefninu áfram og notaði hugmyndina í lokaverkefnið mitt og þróaði það töluvert og við það breyttist konseptið og ég hætti að vinna með klisjur og fór að vinna meira með raunveruleikann," segir Arna Rut Þorleifsdóttir vöruhönnuður um minjagripi sem hún hefur hannað. Lífið 29.6.2009 03:00
Framtíð litla Bretlands óljós David Walliams og Matt Lucas, mennirnir á bak við bresku gamanþættina Little Britian, hafa fengið nóg af þáttunum í bili og ætla ekki að gera fimmtu seríuna eins og leit út fyrir um tíma. Lífið 28.6.2009 20:53
Charlie Sheen deilir við frúnna Bandaríski leikarinn Charlie Sheen og eiginkona hans Brooke Mueller deildu nýverið harkalega á veitingastað í Beverly Hills í Kaliforníu. Hjónunum mun hafa lent saman vegna nýlegra bílakaupa leikarans. Að sögn sjónarvotta yfirgáfu þau þó skemmtistaðinn saman. Lífið 28.6.2009 17:28
Fíkn gerir ekki mannamun Styrktarsjóður Susie Rutar Einarsdóttur sem lést um miðjan júní árið 2007 frumsýnir á morgun forvarnarauglýsingu sem ætlað er að sína að fíkn gerir ekki mannamun. „Það skiptir ekki máli hvert þú ert eða hvaða þú kemur. Hver sem er getur orðið fíkn að bráð,“ segir í tilkynningu. Lífið 28.6.2009 15:35
Springsteen stal senunni á Glastonbury Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen stal um helgina senunni á bresku tónlistarhátíðinni Glastonbury. Söngvaranum þótti takast einkar vel upp á tónleikum sínum sem stóðu í tvær og hálfa klukkustund. „Orkan og gleðin streymdi frá honum,“ sagði Tom Winter frá Stoke-on-Trent um hinn 59 ára gamla söngvara. Lífið 28.6.2009 10:13
Farrah Fawcett verður jarðsett í kyrrþey Bandaríska leikkonan Farrah Fawcett verður jarðsett í kyrrþey í Los Angeles næstkomandi fimmtudag. Hún komst á stjörnuhimininn fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum um Charlies Angels fyrir margt löngu. Lífið 27.6.2009 19:00
Hafdís Huld: Samsæriskenningar komnar á kreik „Það eru allir fjölmiðlar hér fullir af fréttum að Michael Jackson, sérstakir þættir á öllum stöðvum með lögunum hans og allskonar samsæriskenningar strax komnar á kreik," svarar Hafdís Huld Þrastardóttir söngkona sem býr í London aðspurð um viðbrögðin við fráfalli Michael Jackson í Bretlandi. „Það er verið að líkja umræðunni í fjölmiðlum við það sem gerðist þegar Elvis og Marilyn Monroe fellu frá," bætir hún við og segir: „Sama hvað fólki fannst um það hvernig Michael lifði sínu persónulega lífi held ég að enginn geti neitað því að maðurinn var alger snillingur þegar kom að tónlist og sviðsframkomu . Lögin hans hafa elst einstaklega vel og það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess þegar maður hlustar á til dæmis Thriller að þessar upptökur séu meira en 25 ára gamlar." „Uppáhalds Jackson platan mín hefur samt alltaf verið jólaplatan með Jackson five. Hún er spiluð heima hjá mér á hverjum jólum," segir Hafdís áður en kvatt er. Lífið 27.6.2009 16:30
Ellen Kristjáns: Mér fannst hann æðislegur „Hann var bara einstakur skemmtikraftur af líf og sál en höndlaði ekki þennan frægðarsirkus," segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona aðspurð um Michael Jackson. „Mér fannst hann æðislegur, sérstaklega þegar hann var ungur. Uppáhaldslagið mitt er I´ll be there. Elstu stelpurnar mínar og bræðrabörn fannst hann ótrúlega frábær og á tímabili Thrillers var sungið og dansað alla daga og plaköt um alla veggi." „Sorglegt hvernig fór fyrir Michael í lokin en minninginn lifir áfram um frábæran listamann," segir Ellen að lokum. Lífið 27.6.2009 14:44
Viðeyjarhátíð haldin á morgun Viðeyjarhátíðin verður haldin á morgun með miklum glæsibrag. Eva María Þórarinsdóttir, einn skipuleggjenda, segir þessa árlegu gleðihátíð hafa fest sig í sessi sem frábær skemmtun og samverustund fyrir alla fjölskylduna. Lífið 27.6.2009 12:00
Robbie yfirheyrður á Bahamas Breska poppstjarnan Robbie William var nýverið yfirheyrður af lögreglunni á Bahamas-eyjum í tengslum við innbrot hjá tveimur ljósmyndurum sem höfðu skömmu áður myndað fyrrum Take That stjörnuna. Lífið 27.6.2009 10:35
Bókaútgefendur æfir yfir endursöluherferð Pennans „Menn eru ekki ánægðir. Og þetta er ekki bara einhver afmarkaður hópur bókaútgefenda heldur er breið samstaða meðal bókaútgefenda um þetta,“ segir Kristján B. Jónasson. Hann er þarna að vísa í endursöluherferð Pennans þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að koma með kiljur frá árinu 2007 til 2009, selja hvert stykki fyrir 200 krónur og kaupa aðrar skilabækur á 400 krónur. Lífið 27.6.2009 06:00
Handtekinn á flugvelli Jonathan Rhys Meyers, sem lék á móti Anitu Briem í sjónvarpsþáttunum The Tudors, var nýverið handtekinn á flugvelli í París fyrir að hóta barþjóni lífláti. Leikarinn, sem er 31 árs, var drukkinn þegar hann lét öllum illum látum á bar Charles de Gaulle-flugvallarins. Eftir að hafa úthúðað barþjóninum var hann handtekinn og látinn dúsa í varðhaldi í á meðan víman rann af honum. Lífið 27.6.2009 06:00
Gullmolar níunda áratugarins Útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö, hefur gefið út þreföldu safnplötuna Veistu hver ég var? Sextíu lög eru á plötunum þremur sem öll nutu vinsælda á níunda áratugnum. Lífið 27.6.2009 05:45
Þóra gerir sjónvarpsþætti um Hrunið „Jú, þetta er rétt, þetta er í samvinnu við Guðna Th. Jóhannesson og verður byggt á bókinni hans,“ segir sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir sem er að fara að gera heimildarþáttaröð um íslenska efnahagshrunið. Þóra neitar því ekki að þetta sé krefjandi verkefni en hún sé full tilhlökkunar að takast á við það. Ráðgert er að tökur og vinnsla hefjist í ágúst en þangað til mun sjónvarpskonan liggja yfir bók Guðna í sólinni á Ítalíu þar sem hún er nú í sumarfríi. Lífið 27.6.2009 05:30
Tónskáld mótmæla Enn halda áfram opinber mótmæli vegna afstöðu fulltrúa Bandalags íslenskra listamanna í Menningarmálanefnd Reykjavíkur sem fettu fingur út í þá ákvörðun nefndarinnar að velja Steinunni Sigurðardóttur sem Borgarlistamann 2009. Nú hefur borist yfirlýsing frá stjórn Tónskáldafélags Íslands varðandi útnefninguna. Lífið 27.6.2009 04:30
Syrgir poppkónginn á Íslandi „Þetta er búin að vera löng nótt, ég er búinn að vera í símanum frá því að fréttirnar bárust,“ segir Shmuley Boteach rabbíni, einn nánasti vinur poppkóngsins Michaels Jackson, í samtali við Fréttablaðið. Í viðtölum við erlenda fréttamiðla hefur Shmuley sagt að þetta sé amerískur harmleikur en honum hafi alltaf fundist eins og þetta yrðu örlög Jacksons, að deyja ungur. Lífið 27.6.2009 04:00
Kjúklingum stolið úr frystikistu „Þetta er afskaplega fyndið eins og Braga einum er lagið, alveg óþolandi fyndið eiginlega,“ segir leikstjórinn Stefán Jónsson. Eftir áramót verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Hænuungarnir eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns. Lífið 27.6.2009 03:30
Hátíð í Hallgrímskirkju Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju hefst á morgun og er það nú haldið í sautjánda sinn. Á orgelsumri er því fagnað hversu mikið og merkilegt orgel er í kirkjunni á Skólavörðuhæð og þangað koma orgelleikarar á heimsmælikvarða. Hátíðinni tengist svo margvíslegt annað starf en tónlistarlíf og hefur listastarf verið mikilvægur þáttur í kirkjustarfinu í Hallgrímssókn. Lífið 27.6.2009 03:15
Potter vill eldri konur Leikarinn Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Harry Potter, segir í viðtali við tímaritið Parade að hann vilji heldur eldri konur. „Mér finnst, svona almennt, að maður þurfi ekki að hafa jafn mikið fyrir því að skemmta eldri konum. Flestar stelpur sem ég hef átt í sambandi við eru komnar á þrítugsaldurinn,“ segir Radcliffe. Lífið 27.6.2009 02:45
Einu tónleikar Ske-liða Hljómsveitin Ske fagnar útgáfu þriðju breiðskífu sinnar með tónleikum á Grand Rokk í kvöld. Plata Ske, Love For You All, er nýkomin út og hefur fengið góðar viðtökur. Sveitin hefur aldrei þótt iðin við tónleikahald og meðlimir hennar ætla engu að breyta þar um nú, tónleikarnir í kvöld verða að líkindum þeir einu í náinni framtíð. Jeff Who? kemur einnig fram og munu sveitirnar ætla að taka saman lagið. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.30. Lífið 27.6.2009 02:30