Þjóðlög á mynddiski 29. júní 2009 04:00 Tónlist Öld er liðin síðan Bjarni Þorsteinsson gaf út safn sitt Íslensk þjóðlög. Nú er kominn út mynddiskur með flutningi íslenskrar tónlistar af ýmsu tagi. mynd/Þjóðlagasetrið
Það styttist í Þjóðlagahátíðina á Siglufirði sem haldin er í tíunda sinn en hún verður sett á miðvikudag. Í tilefni af afmælinu og aldar útgáfuafmælis þjóðlagasafns sr. Bjarna Þorsteinssonar gefur Þjóðlagasetrið á Siglufirði út stórglæsilegan mynddisk með upptökum sem setrið hefur gert á árunum 2005 til 2009. Alls koma fram á diskinum um 50 manns á öllum aldri og víðs vegar að af landinu. Þar á meðal eru 30 kvæðamenn og 20 manna dansflokkur sem sýnir íslenska þjóðdansa. Þá er leikið á langspil og íslenska fiðlu. Á meðal flytjenda eru Steindór Andersen, Diddi fiðla, Bára Grímsdóttir, Ása Ketilsdóttir, Örn og Sigursveinn Magnússynir, Marta G. Halldórsdóttir og Njáll Sigurðsson. Danshópurinn Sporið sýnir bæði sagnadansa og vikivaka sem og „gömlu dansana“. Stjórnandi útgáfunnar er Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður en hann hefur safnað efninu ásamt Dúa J. Landmark kvikmyndagerðarmanni. Diskurinn er bæði á íslensku og ensku og kemur út 1. júlí við setningu Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. Alls eru 94 mínútur af efni á disknum: rímnalög, barnagælur og þulur, fimmundasöngur, sálmar og svokallaðar druslur, gaman- og drykkjusöngvar, sagnadansar, vikivakar og „gömlu dansarnir“. Sr. Bjarni Þorsteinsson (1861-1938) gaf út bók sína Íslensk þjóðlög á árunum 1906-1909. Hún er helsta ritaða heimild um sögu íslenskrar þjóðlagatónlistar sem til er. Sr. Bjarni safnaði saman lögum úr fornum handritum og bókum en langmerkust er söfnun hans á þjóðlögum úr munnlegri geymd. Einnig leitaði hann til fjölmargra annarra um allt land til þess að skrá lög upp eftir fólki. Sr. Bjarni var ekki aðeins þjóðlagasafnari. Hann var frægt tónskáld á sinni tíð, prestur og mikill hugsjónamaður. Hann stjórnaði allri uppbyggingu á Siglufirði í nærri hálfa öld þegar síldin gerði bæinn að helsta útflutningsbæ landsins og er því af mörgum nefndur faðir Siglufjarðar. - pbb
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira