Erlent

Clinton vill enga miskunn í garð Norður-Kóreu

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur stjórnvöld ríkja í Suðaustur-Asíu til að sýna Norður-Kóreumönnum enga linkind og halda áfram við að fá þá ofan af kjarnorkuáætlun sinni.

Erlent

Telja nýjan landlækni allt of feitan

Regina Benjamin, nýr landlæknir Bandaríkjanna, þykir allt of feit til að gegna svo hárri stöðu innan heilbrigðiskerfisins og hefur skömmunum rignt yfir hana, mestmegnis frá öðrum læknum.

Erlent

Týndi síma og fyrirfór sér

Verkfræðingi hjá kínverskum framleiðanda iPhone-síma varð svo mikið um þegar ný frumgerð símans týndist að hann stökk fram af tólftu hæð á vinnustað sínum.

Erlent

Hjó höfuð af blaðamanni

Úkraínski hershöfðinginn Alexei Pukach hefur verið tekinn höndum vegna gruns um að hann hafi rænt umdeildum blaðamanni fyrir níu árum og höggvið af honum höfuðið.

Erlent

Breskt herskip tók 750 kíló af kókaíni

Herskip á vegum konunglega sjóhersins breska stöðvaði smyglskip undan strönd Suður-Ameríku í byrjun vikunnar og lagði áhöfnin hald á um 750 kíló af kókaíni, sem að öllum líkindum var á leið til Bandaríkjanna.

Erlent

Heilbrigðismálin gætu þurft að bíða

Bandaríkin Barack Obama hefur nú í vikunni mætt harðri andstöðu á Bandaríkjaþingi gegn frumvarpi sínu um víðtækar umbætur í heilbrigðismálum. Stórum hluta þingmanna, einkum repúblikönum en einnig mörgum demókrötum, vex í augum sá kostnaður sem frumvarpið er talið hafa í för með sér fyrir ríkissjóð.

Erlent

Slegist á þingi

Slagsmál brutust út á þingi Suður-Kóreu í Seúl í gær. Tilefnið var umdeilt fjölmiðlafrumvarp, sem var samþykkt, en það losar um takmarkanir á eignarhaldi fjölmiðla.

Erlent

Lengsti sólmyrkvi þessarar aldar

Milljónir manna söfnuðust saman í Asíuríkjum í dag til þess að fylgjast með lengsta sólmyrkva sem verður á þessari öld. Sólmyrkvinn hófst á Indlandi og fór þaðan yfir Nepal, Bangladesh, Bhutan, Burma og Kína. Frá meginlandi Asíu lá leiðin suðaustur yfir Kyrrahaf.

Erlent

Lottómilljónamæringur ætlar í tívolí

Hún datt heldur betur í lukkupottin einstæða þriggja barna móðirin frá Køge í Danmörku. Konan, sem hafði þegið bætur frá hinu opinbera, ákvað að festa kaup á lottómiða laugardaginn 11. júlí síðastliðinn.... og viti menn!

Erlent

Deilt um einkalíf Berlusconis í ítalska þinginu

Hart var deilt í ítalska þinginu í gær vegna einkamála Silvios Berlusconis, forsætisráðherra landsins. Nýlega fundust upptökur af samtali hans við vændiskonu, en í því samtali lýsir Berlusconi mjög frjálslega skoðunum sínum á samskiptum sínum við kvenfólk.

Erlent

Hveitibrauðsdögum Obama lokið

Hveitibrauðsdagar Baracks Obama í embætti forseta Bandaríkjanna virðast vera á enda. Hann hefur aldrei notið minni vinsælda samkvæmt skoðanakönnunum. Könnun sem Gallup gerði fyrir USA Today sýnir að nú, sex mánuðum eftir að hann tók við embætti, nýtur Obama minni vinsælda en George Bush gerði sex mánuðum eftir að hann tók við embætti.

Erlent

Viðurkennir gáleysisleg orð

Japan, AP Taro Aso, forsætisráðherra Japans, rauf þinghald neðri deildar japanska þingsins í gær og boðaði til kosninga í næsta mánuði. Skoðanakannanir benda til þess að uppstokkunar sé að vænta í japönskum stjórnmálum, þar sem Frjálsyndi lýðræðisflokkurinn hefur verið ráðandi afl í meira en hálfa öld.

Erlent

Vilja taka harðar á netþjófnaði

Franska þingið ræðir nú nýja útgáfu frumvarps að lögum um netþjófnað. Fyrri útgáfa frumvarpsins reyndist brjóta í bága við stjórnarskrá Frakklands. Í frumvarpinu er mælt fyrir um stighækkandi refsingar fyrir ítrekuð brot.

Erlent

Eldri borgurum snarfjölgar

Eldri borgurum heimsins hefur aldrei fjölgað eins ört og nú og stutt er í að eldra fólk verði fleira í Bandaríkjunum en það yngra.

Erlent

Tunglfarar líta til baka

Tunglfararnir Neil Armstrong, Buzz Aldrin og Michael Collins komu saman í gær á geimferðasafni Bandaríkjanna og minntust þess að 40 ár voru liðin frá því að þeir tveir fyrstnefndu stigu fyrstir manna fæti á tunglið.

Erlent

Lögreglumenn grýttir

Töluvert hefur verið um árásir á lögreglumenn á hátíð sem nú stendur yfir í Gråsten í Danmörku.

Erlent

Illa gengur að loka Guantanamo

Illa virðist ætla að ganga að loka Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Barack Obama Bandaríkjaforseti lofaði því að fangelsinu yrði lokað í dag en þau fyrirheit virðast ekki ætla að ganga eftir.

Erlent

Signubakkar verða að strönd

Bökkum árinnar Signu í París hefur verið breytt í sandströnd, með tilheyrandi pálmatrjám, sólbaðsstólum, hengirúmum og útisturtum. Uppátækið nefnist Strandir Parísar, og er þetta nú gert í áttunda sinn.

Erlent

Áframhaldandi spenna í Íran

Æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, varaði stjórnarandstöðu landsins í gær við því að halda áfram mótstöðu sinni. Viðvörunin kom í kjölfar þess að fyrrverandi forseti Írans, Mohammad Khatami, kallaði eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um lögmæti ríkis­stjórnarinnar. Það sé eina leiðin út úr því ástandi sem nú ríki í landinu.

Erlent

Elsti lundi í Evrópu er 34 ára gamall

Elsti lundi í Evrópu er 34 ára gamall. Það var áhugahópur um fugla- og fuglamerkingar sem fann lundann við Shiant eyju við vesturhluta Skotlands þegar hópurinn var í fuglaskoðunarferð.

Erlent

Fjör í dönsku brúðkaupi

Hjónaband danskra brúðhjóna hófst heldur betur með látum núna um helgina þegar brúðguminn lenti í slagsmálum við sína eigin fjölskyldu í veislunni.

Erlent

Neita flensusjúklingum um flugfar

Bresku flugfélögin British Airways og Virgin Atlantic ætla að meina farþegum sem grunaðir eru um að vera smitaðir af svínaflensu að ferðast með flugvélum þeirra.

Erlent