Erlent
NATO gerði loftárás á stolna flutningabíla Um 90 manns eru ýmist slasaðir eða látnir eftir að orrustuvélar á vegum NATO gerðu loftárás snemma í morgun á tvo eldsneytisflutningabíla sem stolið hafði verið í norðurhluta Afganistan. Erlent 4.9.2009 08:35
Viðkvæmur sannleikur um Arctic Sea Rússneskur blaðamaður hefur flúið heimaland sitt eftir að hafa vakið athygli á hinu dularfulla máli flutningaskipsins Arctic Sea. Erlent 4.9.2009 08:15
Sagði af sér til að mótmæla stefnu Breta í Afganistan Eric Joyce, aðstoðarmaður breska varnarmálaráðherrans Bob Ainsworth, hefur sagt af sér til að mótmæla stefnu Breta í Afganistan. Erlent 4.9.2009 08:07
Hið ameríska jihad Bandaríkjamaður um tvítugt er fyrir rétti, ákærður fyrir morð og mannrán sem hann segist hafa framið til dýrðar Allah. Erlent 4.9.2009 07:33
Óvíst hvar Jackson hvílir til frambúðar Óljóst er hvort Forest Lawn-kirkjugarðurinn í Glendale í Kaliforníu verður hinsti hvílustaður poppgoðsins Michales Jackson. Jarðneskar leifar hans munu þó að minnsta kosti hvíla þar fyrst um sinn en athöfnin fór fram í gærkvöldi. Erlent 4.9.2009 07:31
Nálgast lokastig auðgunar Norður-Kóreumenn eru að nálgast lokastigið í því ferli að auðga úran og plútón og koma þessum efnum í það ástand að þau verði nothæf til gerðar kjarnavopna. Erlent 4.9.2009 07:28
Tannlæknir hótaði Sarkozy lífláti Tannlæknir og arkitekt eru meðal ellefu manna sem handteknir voru í gær, grunaðir um að hafa sent Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og átta frönskum ráðherrum líflátshótanir. Erlent 4.9.2009 07:25
Bretland síðast úr krumlum kreppunnar Bretland verður síðasta stóra hagkerfi heimsins sem losnar úr viðjum fjármálakreppunnar, ef marka má spár OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Erlent 4.9.2009 07:22
Vinsæl verkjalyf valda fíkn Vinsæl verkjalyf sem milljónir manna taka inn geta valdið fíkn eftir að þeirra hefur verið neytt í einungis þrjá daga, fullyrðir breska heilbrigðiseftirlitið. Erlent 3.9.2009 23:00
Tilkynningum um ólöglega starfsmenn fjölgar Lögreglan í Danmörku fær sífellt fleiri tilkynningar um útlendinga sem starfa ólöglega í Danmörku. Á öðrum ársfjórðungi þessa árs fékk lögreglan 139 tilkynningar um slíkt en 96 tilkynningar á sama tíma í fyrra. Erlent 3.9.2009 20:30
Flæmdur frá heimalandi sínu Mikhail Voitenko blaðamaður hefur flúið Rússland vegna ásakana hans um að Arctic Sea, skipið sem menn telja að hafi verið rænt í júlí, hafi verið í vopnaflutningum. Voitenko segir að honum hafi verið sagt að flýja frá landinu eða eiga hættu á handtöku. Erlent 3.9.2009 17:22
Flóttamenn handteknir við komuna til Íraks Íraska lögreglan hefur handtekið fimm flóttamenn sem dönsk yfirvöld sendu heim til Íraks í gær. Sautján flóttamenn sem einnig var flogið með til Íraks munu á leið til norðurhluta landsins þar sem vinir og vandamenn eru sagðir bíða þeirra. Erlent 3.9.2009 12:50
Fjarskiptagervitungl komst ekki á sporbaug Indónesískt fjarskiptagervitungl, sem skotið var á loft frá Kína á mánudaginn, komst ekki á sporbaug eftir að hreyfill í þriðja þrepi burðarflaugar þess fór ekki í gang. Erlent 3.9.2009 08:37
Kínverjar sýna kjarnavopnin Kínverjar munu sýna kjarnavopn sín opinberlega á 60 ára afmæli Kommúnistaflokksins í haust. Erlent 3.9.2009 08:26
Atkins synjað um reynslulausn í átjánda sinn Konu úr glæpagengi Charles Manson hefur verið neitað í átjánda skiptið um reynslulausn. Erlent 3.9.2009 08:21
Geimrusl nálgast Alþjóðlegu geimstöðina Bandaríska geimferðastofnunin NASA fylgist nú grannt með torfu af geimrusli sem er margir metrar í þvermál og svífur um geiminn í nágrenni við Alþjóðlegu geimstöðina og geimskutluna Discovery sem nú er stödd við stöðina. Erlent 3.9.2009 08:19
Enn sverfur til stáls í Mexíkó Sautján eru látnir eftir að tólf grímuklæddir byssumenn réðust inn í meðferðarstöð í mexíkósku borginni Ciudad Juarez í gær, stilltu vistmönnum þar upp við vegg og hófu skothríð. Erlent 3.9.2009 08:17
Tala látinna á Jövu komin í 46 Tala látinna í indónesíska bænum Cianjur er kominn upp í 46 eftir að snarpur jarðskjálfti skók eyjuna Jövu í gær. Í kjölfar skjálftans féll aurskriða á bæinn og kaffærði ellefu heimili. Erlent 3.9.2009 08:12
Hugðust myrða samnemendur sína Tveir breskir unglingar lögðu á ráðin um að sprengja sprengju í verslunarmiðstöð í Manchester og fara því næst í skólann og skjóta eins marga samnemenda sinna til bana og þeir gætu. Erlent 3.9.2009 08:11
Skoska þingið leggst gegn ákvörðun MacAskill Skoska þingið felldi í gær með nokkrum meirihluta þá ákvörðun Kenny MacAskill dómsmálaráðherra að láta Lockerbie-sprengjumanninn Mohmed al Megrahi lausan. Erlent 3.9.2009 07:33
Bónusar bankamanna lækki Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins fagna frumkvæði Frakka og Þjóðverja, sem vilja fá Bandaríkjastjórn og fleiri ríki í lið með sér til þess að hafa hemil á bónusgreiðslum til yfirmanna í bönkum. Erlent 3.9.2009 06:00
Hælisleitendurnir farnir til Bagdad Hælisleitendurnir frá Írak, sem handteknir voru í kirkju í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, voru í gær sendir með flugvél til Íraks. Óvissa er um örlög þeirra í heimalandinu, en dönsk stjórnvöld segjast hafa farið rétt að öllu. Erlent 3.9.2009 05:00
Lögreglan flæðir um götur Tugir þúsunda ungra manna og kvenna hafa bæst í lögregluliðið í Kína. Tilefnið er sextíu ára afmæli kommúnistastjórnarinnar, sem komst til valda í byrjun október árið 1949. Erlent 3.9.2009 04:30
Viðræður ráðamanna hefjast Háttsettir ráðamenn Ísraelsstjórnar og Palestínustjórnar hittust í gær í fyrsta sinn frá því að Benjamin Netanjahú tók við sem forsætisráðherra Ísraels. Erlent 3.9.2009 04:00
Björgunarfólk vinnur hörðum höndum á Jövu Minnst 35 fórust og 13 þúsund heimili eyðilögðust í öflugum jarðskjálfta sem skók indónesísku eyjuna Jövu í morgun. Björgunarfólk vinnur hörðum höndum að því að reyna að ná út fólki úr rústum hruninna og hálfhruninna bygginga. Erlent 2.9.2009 23:00
Obama ávarpar þingið í næstu viku Barack Obama flytur ræðu um tillögur sínar um uppstokkun á bandaríska heilbrigðiskerfinu á sameiginlegum fundi fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag. Forsetinn hefur sagt núverandi kerfi allt of dýrt og þungt í vöfum. Erlent 2.9.2009 22:46
Stjórnandi afgönsku leyniþjónustunnar drepinn Talíbanar felldu í dag einn æðsta stjórnanda afgönsku leyniþjónustunnar. Skömmu áður tilkynntu Sameinuðu þjóðirnar um að tekist hefði að draga úr einni helstu tekjulind Talíbana, ópíumrækt. Erlent 2.9.2009 21:07
Ósiðleg hegðun öryggisvarða í Kabúl rannsökuð Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mál sem varðar öryggisverði í sendiráði landsins í Afganistan. Verðirnir eru sakaðir um ósiðlega hegðun, þar á meðal að drekka áfengi af afturenda hvors annars. Erlent 2.9.2009 20:55
Leiðtogar taki höndum saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fer þess á leit við leiðtoga heims að þeir taki höndum saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Bón hans var borin fram með tilfinningaþrungnum hætti á norðurheimskautsbaugi. Erlent 2.9.2009 18:30
Karzai eykur við forskot sitt Sitjandi forseti Afganistans Hamid Karzai hefur aukið við forystu sína í forsetakosningunum sem haldnar voru þann 20. ágúst síðastliðinn. Enn er verið að telja atkvæði en nú þegar um 60 prósent þeirra hafa verið talin er Karzai með rúm 47 prósent atkvæða en helsti keppinautur hans Abullah Abdullah er með 32 prósent. Verði þetta niðurstaðan er ljóst að kjósa þarf á ný á milli tveggja efstu frambjóðendanna því fimmtíu prósent atkvæða þarf til þess að sigra. Erlent 2.9.2009 14:47