Erlent
Neitar að tjá sig um Lissabon sáttmálann David Cameron flokksleiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi hefur nú í annað sinn neitað að láta skoðun sína í ljós varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon sáttmálann, þrátt fyrir mikinn þrýsting flokksmanna hans um að gera svo. Erlent 4.10.2009 20:02
Handtekinn fjórum sinnum á einum sólarhring Það mistókst aftur og aftur og aftur og aftur hjá dönskum manni að komast ferða sinna á farartækjum sem ekki tilheyrðu honum. Hann var handtekinn fjórum sinnum á einum sólarhring. Erlent 4.10.2009 12:09
Búist við sigri sósíalista á Grikklandi Búist er við að sósíalistar sigri í þingkosningum sem fram fara í Grikklandi í dag. Velgengni þeirra í kosningunum er helst skrifuð á óánægju almennings með að ríkisstjórn landsins hafi ekki tekist að vinna á spillingu í landinu og rétta við efnahag þess eftir fjármálakreppuna. Erlent 4.10.2009 10:30
Bjargað úr rústunum eftir sms skilaboð Sms skilaboð björguðu þrítugum manni og eiginkonu hans en þau voru grafin undir rústum eftir jarðsskjálftann í Indónesíu í vikunni. Maðurinn skrifaði skilaboðin til föður síns sem býr um 900 km frá. Erlent 4.10.2009 10:02
Fulli fjármálaráðherrann fannst látinn á heimili sínu Shoichi Nakagawa fyrrverandi fjármálaráðherra Japans fannst látinn á heimili sínu í Tokyo í nótt. Nakagawa var 56 ára gamall. Hann komst í heimsfréttir þegar hann var sakaður um að vera drukkinn á fundi sjö helstu iðnríkja heims í febrúar og neyddist eftir það að segja af sér embætti. Lögregla telur litlar líkur á að Nakagawa hafi tekið líf sitt. Erlent 4.10.2009 09:21
Jarðskjálfti á Taívan Jarðskjálfti upp á 6,2 á Richter reið yfir austurhluta Taívan í kvöld. Skjálftann mældist um 29 kílómetra suður af Hua-Lien á um 36 kílómetra dýpt. Engar fréttir hafa borist um skemmdir. Erlent 3.10.2009 20:30
Allt að fjögur þúsund manns enn í rústunum Allt að fjögur þúsund manns gætu enn verið undir rústum eftir jarðskjálftann öfluga sem skók Indónesíu í vikunni að sögn yfirmanns hjá Sameinuðu þjóðunum. Tala látinna er nú þegar komin upp í 540. Erlent 3.10.2009 15:26
Lissabonsáttmálinn samþykktur á Írlandi Írar hafa nú samþykkt Lissabonsáttmálann en þetta er í annað sinn sem sáttmálinn er lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu. Brian Cowen forsætisráðherra landsins gaf þetta út fyrir stundu. Erlent 3.10.2009 14:25
AGS vill lána Angóla Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur til 27 mánaða lánsáætlun upp á 1,3 milljarða dollara fyrir Angóla ef marka má orð yfirmanns hjá sjóðnum í dag en nú stendur yfir ársfundur AGS. Það er Reuters sem greinir frá. Erlent 3.10.2009 13:59
Lissabonsáttmálinn líklega samþykktur í dag Talning er hafin í kosningum Íra um Lissabonsáttmálann. Búist er við að hann verði samþykktur, en Micheal Martin utanríkisráðherra sagði í morgun að útlit væri fyrir að 60% kjósenda styddu sáttmálann. Erlent 3.10.2009 12:08
Sáttmálinn líklega samþykktur ráðin Írar gengu í gær að kjörborðinu til þess að greiða atkvæði um Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins. Talning atkvæða hefst í dag og úrslit verða ekki ljós fyrr en seinni partinn, en allar líkur þóttu á því að sáttmálinn yrði samþykktur. Erlent 3.10.2009 04:30
Bjargað úr rústum eftir tvo sólarhringa Óttast er að þrjú þúsund manns kunni enn að vera grafnir í rústunum eftir jarðskjálftann á Indónesíu á miðvikudag. Ólíklegt er að neinn þeirra finnist á lífi. Nú þegar hafa meira en 700 lík fundist. Björgunarfólk í kappi við tímann. Erlent 3.10.2009 03:45
Meintur stríðsglæpamaður þarf að mæta fyrir dóm Dómstóll í Munchen í Þýskalandi úrskurðaði í dag að John Demjanjuk, meintur stríðsglæpamaður, skuli mæta fyrir rétt. Hann er er sagður hafa aðstoðað við að myrða þúsundir gyðinga þegar hann starfaði sem fangavörður í útrýmingarbúðum í síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 2.10.2009 23:37
Útlit fyrir að Írar samþykki sáttmálann Írar gengu í annað sinn að kjörborðinu í dag til þess að kjósa um Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Kosningu er lokið og verða atkvæði talin á morgun. Erlent 2.10.2009 22:19
Atvinnuleysistölur sorglegar Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að nýjar tölur yfir atvinnuleysi í Bandaríkjunum séu sorglegar en brýna áminningu um langan tíma muni taka að reisa við efnahagskerfi landsins. Erlent 2.10.2009 20:49
Ólympíuleikarnir 2016 verða í Rio Ólympíuleikarnir árið 2016 verða haldnir í Rio de Janeiro í Brasilíu. Alþjóða Ólympíunefndin tilkynnti um sigurvegarann við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn í dag. Þrjár aðrar borgir voru um hituna, Chicago í Bandaríkjunum, Madríd höfuðborg Spánar og Tókýó höfuðborg Japan. Erlent 2.10.2009 16:51
Chicago og Tókýó dottnar út í ólympíuleikakosningu Borgirnar Chicago og Tókýó eru fallnar úr keppninni um hvaða borg fái að halda Ólympíuleikana árið 2016. Kosningin fer fram í Kaupmannahöfn og höfðu bandarísku forsetahjónin Barack og Michelle Obama komið sérstaklega til Danmerkur til þess að ljá Chicago stuðning sinn. Erlent 2.10.2009 15:39
Írar kjósa aftur um Lissabon sáttmálann Írar ganga í annað sinn að kjörborðinu í dag til þess að kjósa um Lissabon sáttmála Evrópusambandsins. Írar höfnuðu sáttmálanum í kosningum í júní í fyrra og nú á að láta reyna á málið að nýju. Erlent 2.10.2009 08:39
Áfrýjunarkröfu Suu Kyi hafnað Dómstóll í Búrma hefur hafnað áfrýjunarkröfu stjórnarandstöðuleiðtogans Aung San Suu Kyi en hún hugðist áfrýja dómi um 18 mánaða framlengingu á stofufangelsinu sem hún hefur setið í. Erlent 2.10.2009 08:08
Chicago - Ríó - Madríd eða Tókýó? Það kemur í ljós síðdegis í dag í hvaða borg Ólympíuleikarnir árið 2016 verða haldnir. Fjórar borgir eru um hituna, Chicago í Bandaríkjunum, Rio de Janeiro í Brasilíu, Madríd höfuðborg Spánar og Tókýó höfuðborg Japan. Alþjóða Ólympíunefndin mun tilkynna um sigurvegarann við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn um klukkan fimm að íslenskum tíma. Erlent 2.10.2009 07:54
Skjálfti á Tonga Jarðskjálfti sem mældist 6,3 á Richter kvarðanum skók Kyrrahafseyjuna Tonga í morgun og olli mikilli skelfingu á meðal eyjarskeggja enda hafa jarðskjálftar valrið gríðarlegu tjóni síðustu daga. Þessi skjálfti er þó sagður hafa gengið yfir án mikils tjóns og ekki var gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna hans. Á þriðjudaginn var reið skjálfti sem mældist 8 á Richter yfir Samoa Eyjar og Tonga og er óttast um líf hundruða. Erlent 2.10.2009 07:52
Myrti konu og setti hana í ferðatösku Hálffertugur Breti hefur verið ákærður fyrir að myrða 37 ára gamla hjúkrunarkonu frá Filippseyjum, koma líki hennar fyrir í ferðatösku og fela töskuna svo í útjaðri Rochester í Kent fyrir rúmri viku. Erlent 2.10.2009 07:40
Nestlé lætur undan þrýstingi AfriForum Svissneski matvælaframleiðandinn Nestlé tilkynnti í gær að fyrirtækið myndi hætta viðskiptum við Gushungo-mjólkurbúið í Zimbabwe sem er rekið af Grace Mugabe, eiginkonu Roberts Mugabe forseta. Erlent 2.10.2009 07:36
Bretar gætu fengið jólapóstinn seint og illa Verulegar tafir gætu orðið á jólapóstinum á Englandi vegna yfirvofandi verkfalls póststarfsmanna í öllu landinu. Ástandið er þegar orðið ískyggilegt eftir verkföll hjá póstinum í einstökum borgum og bæjum og eru skil á pósti víða orðin allt að hálfum mánuði á eftir vegna þessa. Erlent 2.10.2009 07:17
Óttast að finna lík þúsunda í viðbót á Súmötru Björgunarmenn á indónesísku eyjunni Súmötru segjast óttast að þeir eigi eftir að finna lík nokkurra þúsunda í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftunum tveimur aðfaranótt gærdagsins og í fyrradag. Erlent 2.10.2009 07:08
Lögregla leitar í sjö löndum Alþjóðleg lögreglurannsókn leiddi á miðvikudag til handtöku 22 einstaklinga sem grunaðir eru um tengsl við alþjóðlegan hring þýskumælandi barnaníðinga. Alls eru 136 til viðbótar grunaðir um að tengjast hópnum, þar af 121 í Þýskalandi. Erlent 2.10.2009 06:00
Georgíumenn áttu upptökin Upphaf stríðs Rússlands og Georgíu á síðasta ári má rekja til árásar Georgíuhers á Suður-Ossetíu, lýðveldi innan Georgíu sem lengi hafði barist fyrir aðskilnaði frá Georgíu og sameiningu við Rússland. Erlent 2.10.2009 05:00
Þúsundir fastar í rústum húsa Björgunarfólk á Indónesíu leggur nótt við dag til að reyna að bjarga fólki úr rústum húsa sem hrundu þegar tveir harðir jarðskjálftar urðu þar á miðvikudag. Erlent 2.10.2009 05:00
Sprengdu óvart vitlaust hús Eitthvað virðist vanta upp á nákvæmnina hjá sérsveit sænska hersins, sem sprengdi fyrir mistök vitlaust hús þegar þeir voru við æfingar í bænum Röjdåfors í Suður-Svíþjóð. Erlent 2.10.2009 05:00
Vanhanen stóð af sér storminn Ríkisstjórn Finnlands stóð af sér atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á þjóðþingi landsins í gær. Erlent 2.10.2009 04:45