Erlent

Bílar veltu ferju

Tuttugu og átta manna áhöfn þessarar japönsku ferju slapp með skrekkinn þegar farmur hennar slóst til í óveðri um helgina.

Erlent

Reyndi að eyða fóstri hjákonu

Breskur læknir hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að reyna að eyða fóstri ástkonu sinnar án hennar vitundar. Edward Erin er 44 ára gamall tveggja bjarna faðir.

Erlent

Hneigði Obama sig of djúp?

Hægri menn í Bandaríkjunum hafa alveg farið á límingunum yfir því að Barack Obama skyldi hneigja sig djúpt þegar hann hitti japönsku keisarahjónin í Tokyo um helgina.

Erlent

C-vítamín gagnslaust við kvefi

Þýsk stofnun sem fylgist með gæðum og virkni í heilbrigðismálum hefur komist að þeirri niðurstöðu að C-vítamín veiti ekki vernd gegn kvefi.

Erlent

Bíll blaðamanns brenndur í Slagelse

Danskur blaðamaður, sem fjallað hefur um glæpamál í Slagelse fyrir sjálenska fjölmiðilinn Sjællandske, dróst sjálfur inn í umfjöllunina þegar bíll hans var brenndur til kaldra kola við heimili hans í skjóli nætur um helgina.

Erlent

Kveikti í konu fyrir framan börnin hennar

Karlmaður í Queens hverfinu í New York bankaði upp á hjá fyrrverandi kærustu sinni í dag. Þegar hún kom til dyra kastaði hann bensíni á hana og kveikti í henni. Börnin hennar, sem eru eins og hálfs árs og þriggja ára gömul sáu móður sína brenna.

Erlent

Vill hýsa hryðjuverkamenn í nafni efnahagsins

Fylkisstjóri Illinois í Bandaríkjunum vonast til þess að geta hýst hryðjuverkamenn sem hingað til hafa dvalið í Guantanamo Bay í hámarks öryggisfangelsi í fylkinu. Hann sagði í viðtali við fjölmiðla í dag að með nýju hámarksöryggisfangelsi væri hægt að skapa allt að 2000 störf og skapa tekjur upp á inn milljarð dollara.

Erlent

Telja sig hafa handtekið hrottalegasta nauðgara Bretlands

Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið rúmlega fimmtugan mann sem er grunaður um að vera einhver eftirlýstasti kynferðisglæpamaður Bretlands. Maðurinn, sem er kallaður „Næturhrellirinn“ (e. Nightstalker) í breskum fjölmiðlum, á að baki um 100 árásir á eldri borgara í suður-London. Árásirnar ná aftur til 1990.

Erlent

Seldi fimm ára dóttur sína í kynlífsánauð - stúlkunnar leitað

Hin tuttugu og fimm ára gamla Antoinette Nicole Davis hefur verið handtekinn og ákærð fyrir að selja fimm ára gamla dóttur sína í hendurnar á karlmanni vitandi að barnið yrði selt í kynlífsánuð. Davis, sem er frá Norðu Karólínu í Bandaríkjunum, seldi dóttur sína í hendurnar á manni sem heitir Mario McNeill í síðustu viku. Hún tilkynnti lögreglunni um hvarf stúlkunnar tveimur dögum síðar.

Erlent

Clinton til í kaffibolla með Sarah Palin

Hillary Clinton sagði á blaðamannafundi í Singapoore í dag að hún væri fyllilega tilbúin að setjast niður með fyrrum varaforsetaefninu Söruh Palin sem var að gefa út bók um reynslu sína.

Erlent

Svíar skila hauskúpum

Sænska þjóðminjasafnið skilaði í gær 22 hauskúpum til baka til frumbyggja á Hawaii. Það voru sænskir vísindamenn sem grófu hauskúpurnar upp á 19. öld en síðan þá hafa þær verið til sýnis á sænska þjóðminjasafninu í Stokkhólmi.

Erlent

Hermenn heimsækja Tröppupíramídann

Bandarískir hermenn eru nú þeir fyrstu sem skoða tröppupíramídann af Úr í Írak eða Ziggurat eins og hann er kallaður. Píramídinn er talinn vera fjögurþúsund ára gamall og er hluti af ævafornir borg Súmera.

Erlent

Óttast svínaflensusmit í Disney

Mikki mús og félagar taka enga áhættu þegar svínaflensan er annarsvegar en forsvarsmenn Disney-garðsins í Orlando í Bandaríkjunum hafa sett upp sextíu sótthreinsidunka víðsvegar um garðinn heimsfræga samkvæmt fréttastofu AFP.

Erlent

Sextíu manns slösuðust á jólatónleikum

Sextíu manns slösuðust á jólatónleikum í Birmingham, Bretlandi, þegar X-Factor stjarnan JLS átti að stíga á svið. Járngrind sem aðskilur fjöldann og er mikilvægt öryggisatriði þar sem fjöldi manna er kominn, gaf sig með þessum hörmulegu afleiðingum.

Erlent

Fundu vatn á tunglinu

Geimvísindamenn á vegum NASA hafa fundið vatn á tunglinu og telja að það muni gera þeim kleyft að opna geimstöð þar. Það var Anthony Colaprete, sérfræðingur í geimvísindum, sem tilkynnti þetta í dag, eftir því sem fram kemur á vef CNN.

Erlent

Obama vill rannsókn á vinnubrögðum leyniþjónustu

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað rannsókn á því hvort leyniþjónustumenn hafi tekið réttar ákvarðanir í máli Nidals Malik Hasan, geðlæknisins sem skaut 13 manns til bana og særði yfir 30 í þarsíðustu viku.

Erlent

Loftbelgsfjölskyldan játar sekt

Richard Heene, faðir loftbelgsdrengsins svonefnda, sem bandaríska þjóðin stóð á öndinni yfir um miðjan október, mun játa sekt sína í málinu þegar hann kemur fyrir dómara.

Erlent

Abbas gæti setið áfram

Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, gæti hæglega setið áfram í embætti ótímabundið þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að hann ætli ekki að bjóða sig fram í kosningunum í janúar.

Erlent

Rússland þarf nútímavæðingu

Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti segir að Rússland verði að nútímavæðast. Efnahagslífið megi ekki vera jafn háð hráefnisútflutningi og verið hefur heldur þurfi að tileinka sér nútíma hátækni.

Erlent

Reinfeldt boðar leiðtogafund

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, boðaði í gær til leiðtogafundar Evrópusambandsins 19. nóvember næstkomandi, þar sem leiðtogarnir eiga að velja í tvö ný embætti, forseta leiðtogaráðsins og utanríkisfulltrúa.

Erlent

Hlýða boði um sjálfseyðingu

Hægt er að senda stolnum eða týndum USB-minnislyklum skipun yfir internetið um að eyðileggjast, með nýrri tækni sem fyrirtækið Cryptzone kynnti í gær.

Erlent