Erlent
Breskir þingmenn kærðir fyrir þjófnað Fjórir breskir þingmenn verða sóttir til saka fyrir oftöku fjár úr opinberum sjóðum. Þeir eru sakaðir um þjófnað. Erlent 5.2.2010 14:40
Norðmenn reka fimmþúsund úr landi Norðmenn eru farnir að taka mun harðar á innflytjendamálum en áður. Á síðasta ári voru 3340 fluttir nauðugir úr landi. Erlent 5.2.2010 10:40
Grafin lifandi fyrir að vingast við stráka Faðir og afi hafa verið handteknir í Tyrklandi fyrir að grafa sextán ára stúlku lifandi vegna þess að hún vingaðist við stráka. Erlent 5.2.2010 09:47
Forsætisráðherra Haítí óttast að kristniboðarnir fái of mikla athygli Forsætisráðherra Haítí óttast að mál krstniboðanna 10 sem sakaðir eru um að hafa ætlað að ræna börnum eftir jarðskjálftann beini athygli alheimsins frá björgunarstörfum í Haítí. Erlent 5.2.2010 07:56
Wikileaks vill til Íslands Vefsíðan Wikileaks, þar sem mikilvægar trúnaðarupplýsingar hafa verið hýstar, er ennþá lokuð. Henni var lokað fyrir síðustu áramót. Þau skilaboð fylgdu með að verið væri að afla fjár til þess að tryggja rekstur vefsíðunnar til framtíðar, en reksturinn er alfarið byggður á frjálsum framlögum. Erlent 5.2.2010 07:19
Hafa handtekið 100 af 4000 föngum Lögreglan í Haítí hefur handtekið 100 af þeim 4000 föngum sem flúðu úr fangelsi í Port-au-Prince eftir jarðskjálftann í Haítí þann 12. janúar síðastliðinn. Frantz Lerebous, talsmaður lögreglunnar, segir að fleiri fanga sé leitað. Allir fangar sem voru í fangelsinu flúðu, jafnvel þeir hættulegustu sem voru dæmdir fyrir nauðgun og morð. Erlent 5.2.2010 07:10
Scott Brown settur í embætti Repúblikaninn Scott Brown tók sæti Edwards Kennedy í öldungadeildinni í gær. Það var Joe Biden varaforseti sem setti Brown í embætti. Hann tekur sæti sitt viku fyrr en áætlað var. Erlent 5.2.2010 06:57
Kínverjar vísa gagnrýni á bug Kínversk stjórnvöld vísa á bug gagnrýni Baracks Obama Bandaríkjaforseta, sem ætlar að fara í hart út af deilum um kínverska gjaldmiðilinn. Erlent 5.2.2010 04:00
Vandi risaþotu verður leystur Angela Merkel Þýskalandskanslari brá sér í heimsókn til Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta í París í gær. Erlent 5.2.2010 04:00
Líf heimastjórnar hangir á bláþræði Stífum tíu daga samningaviðræðum sambandssinna og lýðveldissinna á Norður-Írlandi lauk í gær þegar fulltrúar lýðveldissinna sögðu nóg komið. Erlent 5.2.2010 03:00
Bannar buffla Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu, hefur bannað fólki að nota buffla á mótmælafundum. Ástæðan er sú að í síðustu viku var buffall með nafni forsetans leiddur um götur Djakarta í mótmælaaðgerðum gegn forsetanum. Erlent 5.2.2010 01:30
Trúboðar ákærðir fyrir barnsrán á Haítí Stjórnvöld á Haítí hafa ákært tíu bandaríska trúboða fyrir mannrán en þau eru sökuð um að hafa ætlað að smygla 33 börnum úr landinu. Ef trúboðarnir verða sakfelldir gætu þau átt yfir höfði sér langa fangelsisdóma. Fólkið var stöðvað á landamærum Dóminíska lýðveldisins á föstudaginn var og þá sögðust þau vera að flytja börnin á munaðarleysingjahæli þar í landi. Síðar kom í ljós að sum barnanna voru alls ekki munaðarlaus. Erlent 4.2.2010 21:13
Flinkur hvalur Þjálfunin tók eitt ár. En nú getur þessi hvíti hvalur í sædýrasafninu í Pólarlandi í Kína blásið frá sér snotru loftbólu-hjarta. Erlent 4.2.2010 16:02
Veruleg óánægja með tryggingar Ósáttur viðskiptavinur tryggingafélags í borginni Darwin í Ástralíu lét óánægju sína í ljós með því að sprengja skrifstofu þess í loft upp. Erlent 4.2.2010 14:50
Kötturinn sem heilsar dauðanum Köttur á bandarísku hjúkrunarheimili fyrir gamalt fólk með mikil elliglöp hefur nú spáð rétt fyrir um dauða fimmtíu sjúklinga. Erlent 4.2.2010 14:00
Breska þingið setur niður Þrjúhundruð og níutíu breskum þingmönnum hefur verið skipað að endurgreiða samtals rúma eina milljón sterlingspunda fyrir margvíslegan kostnað sem þeir létu opinbera sjóði greiða. Erlent 4.2.2010 11:41
Vilja að Pakistanar temji talibana Það voru Pakistanar sem sköpuðu þessa ófreskju á sínum tima. Þeir þjálfuðu og vopnuðu talibana á níunda áratugnum. Þeir báru á þá fé og létu þeim meira að segja í té skriðdreka og stórskotalið. Erlent 4.2.2010 11:35
Obama skapar sér óvild í Vegas Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skapað sér mikla óvild í Las Vegas vegna kærulausra ummæla sinna um borgina. Erlent 4.2.2010 07:02
Vilja kæra fyrir þjóðarmorð Stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur verið uppálagt af áfrýjunardómstól að endurskoða niðurstöðu sína um að ákæra ekki Omar al-Bashir, forseta Súdan, fyrir þjóðarmorð í Darfur-héraði. Niðurstaða dómstólsins í Haag er talin leggja grunninn að því að al-Bashir komist upp með að hafa skipulagt þjóðarhreinsanir í héraðinu. Erlent 4.2.2010 03:45
Leitinni að morðingja Olafs Palme verður haldið áfram Sænska þingið hefur samþykkt lög sem gerir kleyft að halda leitinni að morðingja Olafs Palme áfram. Palme var myrtur þann 28. febrúar 1986. Erlent 3.2.2010 23:00
Gagnrýna stefnu Obama í þjóðaröryggismálum Repúblikanar í Bandaríkjunum segjast sjá veikleika í baráttu Baracks Obama gegn hryðjuverkum. Þeir telja jafnframt að þessi veikleiki hans gæti skapað þeim sóknarfæri í kosningum til fulltrúadeildar þingsins næsta haust. Erlent 3.2.2010 22:30
Seldu styttu á 13 milljarða króna Sothebys uppboðsfyrirtækið í Lundúnum seldi í gær dýrasta verk sem hefur nokkurn tíma verið selt á uppboði hingað til. Erlent 3.2.2010 21:34
Um 200 þúsund lík hafa fundist í Haítí Nú hafa að minnsta kosti 200 þúsund lík fundist eftir jarðskjálftann í Haítí þann 12. janúar síðastliðinn. Þetta fullyrðir Jean-Max Bellerive, forsætisráðherra landsins, í samtali við AFP fréttastofuna. Hann segir jafnframt að um 300 þúsund manns liggi slasaðir á sjúkrahúsum og að um fjögur þúsund hafi verið aflimaðir eftir skjálftann. Erlent 3.2.2010 21:07
Konan og sólsetrið Konu sem var heima hjá sér í Suður-Þýskalandi langaði til að sjá sólsetur í strandbænum St. Peter-Ording sem hún hafði heimsótt. Erlent 3.2.2010 16:21
Góður pabbi Moammar Gaddafi leiðtogi Libyu hefur lagt fæð á Sviss eftir að sonur hans Hannibal og eiginkona hans voru handtekin þar í landi í júlí árið 2008. Erlent 3.2.2010 14:16
Enn eitt fjöldamorð á pílagrímum Minnst tveir tugir manna fórust í sprengjuárás í hinni helgu borg Karbala í Írak í dag. Þangað streyma nú tugþúsundir pílagríma vegna trúarhátíðar shía múslima. Erlent 3.2.2010 13:33
Fær að halda ránsfengnum frá Haítí Hæstiréttur Sviss hefur úrskurðað að skila eigi fjögurra komma sex milljóna dollara bankareikningum til Duvalier fjölskyldunnar frá Haítí. Erlent 3.2.2010 12:53
Passið ykkur á kínverskum tölvukubbum -og stelpum Breska leyniþjónustan MI5 segir að breskir kaupsýslumenn ættu að gæta sín á því að taka við tölvu-minniskubbum að gjöf frá kínverskum viðskiptavinum. Erlent 3.2.2010 10:21
Fréttamenn í sprengingu í Pakistan Fjórir eru látnir hið minnsta eftir að sprengja sprakk í Norðvesturhluta Pakistans. Að minnsta kosti þrír útlendingar létust í árásinni að sögn lögreglu á svæðinu en ekki hefur verið gefið upp af hvaða þjóðerni þeir voru. Hópur fréttamanna var á ferð í bílalest á vegum hersins þegar sprengjan, sem komið hafði verið fyrir í vegarkantinum sprakk. Að minnsta kosti 25 særðust í árásinni. Erlent 3.2.2010 08:27
Fyrrverandi utanríkisráðherra Mexíkó vill lögleiða Maríjúana Bandaríkin og Mexíkó ættu að lögleiða Maríjúana og slá þannig vopnin úr höndum eiturlyfjahringa sem þrífast við landamærin. Þetta segir fyrrverandi utanríkisráðherra Mexíkó, Jorge Castaneda í viðtali á CNN sjónvarpsstöðinni. Hann segir það fáránlegt að Mexíkanar reyni hvað þeir geti til þess að stoppa flæði eiturlyfa yfir til Bandaríkjanna á meðan notkun þess hefur verið leyfð í Kalíforníu gegn framvísun lyfseðils. Erlent 3.2.2010 08:18